[quote=Árni H]Stofuborðin eru afar gagnleg til módelsmíða. Nú er Fokkerinn minn kominn á stofuborðið heima - þið megið giska einu sinni hver setur mestu pressuna á mig að ljúka málningarvinnunni! [/quote]
Væntanlega ekki kötturinn!
Næst ákvað ég að ganga frá festingunum á gróðurhúsinu. Fyrst þurfti að koma því nokkurn veginn í miðjuna og líma allt fast. Eins og sést á næstu mynd var ekki hægt að styðjast við samsetningarlínurnar á pörtunum við það verk.
Hér er búið að bora fyrir röri að framan, passa þarf að skilja eftir pláss fyrir kúpulinn.
Hér er búið að bora fyrir læsingarpinnanum að aftan og skera út gat fyrir hann á skrokkinn. Eins og áður þá er honum tyllt með sýrulími á meðan virknin er könnuð.
Krossviður og lím sjá svo um að halda honum á sínum stað!
Svo eru gerð göt í gegnum rammann og niður í skrokk fyrir króka sem koma í hliðarnar.
Strangt til tekið eru þeir ekki nauðsynlegir en þeir skemma alls ekki fyrir og tryggja gróðurhúsið enn betur.
Þrátt fyrir að vélin sé stór þá þarf að framkvæma mest alla vinnuna inn um loftinntakið á vélinni.
Finnst að fleiri vélar mættu vera jafn aðgengilegar og Futura, gerist ekki mikið betra aðgengið!
Þotusafatankarnir voru settir saman í dag og mátaðir í skrokkinn. Það verður ekki hlaupið að því að líma þá svo í vélina inn um þau op sem eru í boði. Hugsa að ég falli samt ekki í freistni og sagi gat á hvalbakinn, ætli það sé hægt að notfæra sér keyhole aðgerðarsérfræðingana í sportinu...
Það er gott að hafa smá þykildi á rörunum þegar öryggisvírar eru settir á slöngurnar og reyndar líka þó þeir séu ekki notaðir. Hægt er að kaupa tilsniðna búta og lóða þá upp á rörin.
Og þá lítur það einhvern vegin svona út.
Það er líka hægt að taka mjúkan vír og vefja hann upp í rétta stærð.
Svo er bara að klippa út hentuga búta.
Og lóða á.
Hér eru tankarnir í rifjunum sem þeir sitja í í skrokknum.
Tankarnir stóðust þrýstiprófun í baðkarinu svo nú fá þeir að standa fullir af þotusafa út í skúr.
* Ertu með eitthvað í eldsneytiskerfinu til að hindra að það fari loftbóla upp í brunahólfið?[/quote]
Svo segir framleiðandinn og ég hef enga ástæðu til að efast um það.
Loftsía sér um að stoppa loftbólurnar, hahaha, nei það verður peli(virkar eins og UAT) í kerfinu sem sér um þau mál.
Gæðaeftirlitið hjá CARF virðist skila sínu því ekki láku tankarnir en það er líka annað sem fylgir þessu og það er skolun á óhreindinum. Ég var búinn að hreinsa mest af því ryki sem sást en það er alltaf eitthvað sem verður eftir, þó nokkuð mikið í þessu tilfelli, og þetta er drulla sem við viljum ekki sjá nálægt mótornum eða öðrum hlutum eldsneytiskerfisins!