[quote=Gunnarb]...
Ég get næstum lofað þér því að ferðaeplið ræður ekki við mest krefjandi stillingarnar. Ég er með Imac quad-core og hún höktir þegar ég keyri í HD með mesta detail á öllu
![Smile :-)](./images/smilies/icon_e_smile.gif)
[/quote]
Á heldur ekki von á því, það virðist þurfa ansi "heitt" teiknikort í tölvurnar til að komast á æðsta stigið.
Ferðavélin mín er með i5 2ja kjarna örgjörva og NVIDIA GeForce GT 330M skjákorti.
Hvað það þýðir í þessu sambandi hef ég ekki mikla hugmynd um en mig grunar að hin aumu 256Mb VRAM á skjákortinu sé ansi takmarkandi.
Verður líka fróðlegt að prófa í stórri myndvinnslutölvu sem ég hef aðgang að.
[quote]Það leið því miður langt á milli þess að ég flaug G4 vs. Aerofly5, þannig að samanburðurinn var ekki vísindalegur með þetta hlið við hlið - ég átti amk. von á meiri mun. En að því sögðu er þetta frábær simulator...[/quote]
Mín Realflight var nú mun eldri en þetta svo mínar (slæmu) minningar eiga kannski ekki við, Realflight fór jú verulega batnandi með G3-4
Hvernig sem því líður þá er nú tilgangurinn ekki að sjá æsileg raunveruleikatöfrabrögð nútíma tölvumyndmótunar heldur æfa sig í módelflugi. Til þess má vélin alveg eins vera frumstæð í útliti, og landslagið ómerkilegt, bara ef hreyfingar og viðbrögð eru sem eðlilegust.
Ég hlakka mikið til að geta æft mig á kvöldin í þessum blessuðu útilegum mínum.
[quote=Haraldur]Væri ekki upplagt að þeir sem eiga Aerofly 5 eða 5.5 kíki með hann á næsta Þyts fund sem er n.k. fimmtudag og leyfi okkur hinum að prófa og sjá.[/quote]
Takk kærlega fyrir að minna mig á. Ég var ekki búinn að átta mig á að það væræi fundur í vikunni. Ég reyni að mæta, en er þó hermislaus ennþá.
Sjáumst á fimmtudag.