[quote=SteinarHugi]Þetta er Canon EOS 1Ds Mark II body með Canon EF 70-200mm F/2.8L IS mark II linsu og 2x extender. Aðeins meira gler en í iPhone-inum hans Sverris =)
Þrátt fyrir allar þessar græjur er vélin að hálf kox-a á appelsínugula litnum á TF-JET, sjáið að hann er óeðlilega rauður á ákveðum svæðum. Kemur hálf undarlega út.
SH[/quote]
Appelsínuguli liturinn getur virkað mjög misjafn eftir ljósinu sem fellur á hann, virkað rauðari í skuggunum og gulari þar sem dagsljósið er sterkara. Það er af því að dagsljósið (sem kemur ofanað) er mjög blátt, sem er gagnstæður litur við appelsínugult.
Þetta er sennilega ástæðan. Svo geta græjurnar (tölva/skjár) sem þú ert að skoða myndirnar í, verið að skemma fyrir þér litasviðið og ýkja þennan mun. Í minni tölvu sé ég bara fínar myndir frá þér. Maður sér að appelsínuguli liturinn er aðeins meira yfir í rautt í skuggunum og gult í háljósum en það er sem sagt alveg eðlilegt fyrirbæri og ekki myndavélinni að kenna.
Mannsaugað/heilinn "leiðréttir" talsvert svona litamun þegar maður er að horfa á þetta í náttúrunni þeas maður sér ekki muninn greinilega fyrr en myndavélin "staðfestir" hann.
Hér er
lesning um gagnstæða liti (Complimentary colors)