Ég heiti Vignir Vilhjálmsson og er rafvirki og rafeindavirki. Ég er nýskráður hér á módelspjallið og er byrjaður að fljúga aftur eftir 20 ára hlé !
Núna er ég að fljúga lítilli Cessna rafhlöðuvél sem sonurinn fékk fyrir rúmlega 3 árum en hefur ekkert notað. Rafhlöður hafa misst rýmd eftir svo langt hlé (50% í dag) og er ég að spá í að fá mér LiPo rafhlöður, 1,3Ah 11,1V Nú kemur spurningin...hver er kostnaður við að panta efni t.d. rafhlöður frá Hobby King eða öðrum ? sendingarkostnaður, gjöld o.s.frv. Eru menn að panta vörur í hóppöntunum ?
Ég hef fylgst töluvert með þessum fréttavef og kann vel að meta það sem þar ber á góma
![Smile :)](./images/smilies/icon_e_smile.gif)