Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Eysteinn
Póstar: 523 Skráður: 10. Jan. 2009 16:40:24
Póstur
eftir Eysteinn » 28. Jan. 2012 23:46:57
Þessi verður með í sumar. Næstum klár í hraðflugskeppnir (vantar ríkisrafhlöður).
Ein dónamynd hérna
Ég þarf aðeins að ganga betur frá þessu. Svo er spurning hvort að það sé ekki best að vera með Saterlite?
Kveðja,
Eysteinn Harry Sigursteinsson.
I’ve learned so much from my mistakes…
I’m thinking of making a few more.
Árni H
Póstar: 1604 Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00
Póstur
eftir Árni H » 29. Jan. 2012 18:20:14
Ég er með svona móttakara í Gremlin og hann hefur bara virkað eins og móttakari á að gera. Ég hef flogið Gremlin eins langt í burtu frá mér eins og skynsamlegt er með svona litla vél og það án allra vandræða. Það er hins vegar ekki óskynsamlegt að bæta satellite við - ég hefði gert það í Gremlin ef ég hefði bara fattað að það væri hægt á þessum móttakara :rolleyes:
Spitfire
Póstar: 412 Skráður: 6. Ágú. 2006 12:16:01
Póstur
eftir Spitfire » 29. Feb. 2012 12:59:59
Má þetta: :p
VIDEO
Hrannar Gestsson, Patreksfirði
The knack of flying is learning how to throw yourself at the ground and miss.
Douglas Adams
Gaui
Póstar: 3893 Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður
Póstur
eftir Gaui » 29. Feb. 2012 13:21:53
Það er spurning hvort Patrksfjörður er nógu langur / breiður fyrir rúmlega 250 km/klst flug.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Haraldur
Póstar: 1409 Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44
Póstur
eftir Haraldur » 29. Feb. 2012 22:17:52
[quote=Spitfire]Má þetta: :p[/quote]
Varla, ef það má ekki einu sinni breyta rafhlöðunni
Markmiðið með ríkisdótinu er að allir séu á jafnréttistgrundvelli með eins vélar og útbúnað.
Agust
Póstar: 2986 Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18
Póstur
eftir Agust » 1. Mar. 2012 07:27:09
Þá yrði fyrst gaman ef það mætti breyta og bæta.
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11709 Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31
Póstur
eftir Sverrir » 1. Mar. 2012 08:49:41
Ekkert sem stoppar menn í að breyta og bæta en þeir keppa náttúrulega ekki á þeim vélum með öllum hinum! Ef menn ætla út í breytingar og betrumbætur þá láta þeir varla kaup á einum Stinger enn stoppa sig.
Icelandic Volcano Yeti
Árni H
Póstar: 1604 Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00
Póstur
eftir Árni H » 1. Mar. 2012 09:41:02
Þetta eru ekki dýrar vélar - er ekki hægt að hafa opinn flokk fyrir þá sem eru búnir að hræra í frauðinu?
Kv,
Árni H
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11709 Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31
Póstur
eftir Sverrir » 1. Mar. 2012 09:49:18
Við skulum byrja á einum flokk áður en við förum að skipta þessu upp!
Icelandic Volcano Yeti
Árni H
Póstar: 1604 Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00
Póstur
eftir Árni H » 1. Mar. 2012 10:42:32
[quote=Sverrir]Við skulum byrja á einum flokk áður en við förum að skipta þessu upp![/quote]
Sjálfsagt er það nú skynsamlegast...