24.11.2011 - Aðalfundi Þyts lokið

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11427
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 24.11.2011 - Aðalfundi Þyts lokið

Póstur eftir Sverrir »

Aðalfundur Þyts var haldinn fyrr í kvöld í Skátaheimilinu í Hafnarfirði. Eysteinn formaður flutti skýrslu um árið sem var að líða og sagði frá því helsta sem var að gert.

Reikningar félagsins voru samþykktir eftir smá umræður og komu fram gagnlegar ábendingar frá skoðunarmönnum reikninga varðandi framsetningu gagna. Jón gjaldkeri lagði til að félagsgjaldið yrði hækkað um 1000 krónur og yrði þá 12.000 á næsta ári. Rafn lagði á móti til að það yrði óbreytt. Eftir kosningu kom í ljós að meirihluti viðstaddra vildi hækka félagsgjaldið. Á næsta ári stendur svo til að taka pittsvæðið í gegn, laga borðin og setja upp háa girðingu til að skýla þeim sem eru inn í pittinum.

Pétur sagði frá hinu árlega Piper Cub móti og var fín þátttaka í því. Frímann sagði frá Kríumótinu ásamt því sem hann afhenti verðlaun. 1.sæti Böðvar Guðmundsson, 2.sæti, Jón V. Pétursson, 3.sæti Guðjón Halldórsson.

Jón V. Pétursson fékk rússneska kosningu í áframhaldandi setu sem gjaldkeri félagsins, Einar Páll Einarsson gaf kost á sér áfram sem meðstjórnandi og fékk líka rússneska kosningu. Björn G. Leifsson sá sér því miður ekki fært að gefa kost á sér áfram sem meðstjórnandi en Einar Á. Kristjánsson bauð sig fram í stað hans og var það samþykkt samhljóða af fundarmönnum. Í embætti skoðunarmanna reikninga þá buðu þeir Erlingur Erlingsson og Rafn Thorarensen sig fram til áframhaldandi setu og hlutu þeir rússneska kosningu.

Skipað var í nefndir til að halda utan um Piper Cub mótið, Kríumótið, Íslandsmeistaramót í hangi og stjórnin mun vinna með FMS í sambandi við hraðflugskeppnir næsta sumars.

Undir liðnum önnur mál þá tók fyrstur til máls Eysteinn formaður og sagði frá því að stjórnin legði til að Sverrir Gunnlaugsson yrði gerður að heiðursfélaga í Þyt fyrir vinnu sína í þágu módelflugs á Íslandi undanfarin ár. Samþykktu fundarmenn það og þakkaði Sverrir fyrir sig. Haraldur spurði svo aðeins út í fyrirkomulagið í kringum hraðflugskeppnir næsta sumars. Unnið verður í þeim málum í vetur. Bjarni spurði um nýliðakennslu og mun stjórnin skoða þau mál fyrir sumarið.

Svo var aðalfundi Þyts 2011 slitið.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11427
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 24.11.2011 - Aðalfundi Þyts lokið

Póstur eftir Sverrir »

Ég þakka kærlega fyrir mig! :)
Icelandic Volcano Yeti
lulli
Póstar: 1238
Skráður: 1. Des. 2006 21:14:09

Re: 24.11.2011 - Aðalfundi Þyts lokið

Póstur eftir lulli »

[quote=Sverrir]Ég þakka kærlega fyrir mig! :)[/quote]
ég þori að fullyrða að flugmódelmenn á landsvísu þakka ,,á líkann máta" :)
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
lulli
Póstar: 1238
Skráður: 1. Des. 2006 21:14:09

Re: 24.11.2011 - Aðalfundi Þyts lokið

Póstur eftir lulli »

Þegar ég taldi viðstadda voru 26 mættir til fundar.
Þetta var samstilltur fundur og menn ákveðnir í að halda af fullum krafti í nýtt starfsár.(auðvitað:)
Kv. Lúlli.

Salurinn.
Mynd

Nýkjörinn heiðursfélagi Þyts 2011 - Sverrir Gunnlaugsson.
Mynd

Nýkjörinn meðstjórnandi Einar Á Kristjánsson.
Mynd

l. verðlaun Kríumótsins - Böðvar Guðmundsson.
Mynd

ll. verðlaun Kríumótsins afhent - Jón V. Pétursson
Mynd

lll. verðlaun Kríumótsins afhent - Guðjón Halldórsson
Mynd

Nammi nammi namm.........
Mynd


Kaffiþyrstir fengu sinn skerf.
Mynd
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
Passamynd
Agust
Póstar: 2984
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: 24.11.2011 - Aðalfundi Þyts lokið

Póstur eftir Agust »

Slæmt þykir mér að hafa misst af þessum góða fundi og þessari góðu tertu. Einhver hrollur var að hrjá mig í gær og fram eftir kvöldi svo mér þótti ráðlegast að vera heima.

Til hamingju Sverrir.
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
lulli
Póstar: 1238
Skráður: 1. Des. 2006 21:14:09

Re: 24.11.2011 - Aðalfundi Þyts lokið

Póstur eftir lulli »

[quote=Agust]Slæmt þykir mér að hafa misst af þessum góða fundi og þessari góðu tertu. Einhver hrollur var að hrjá mig í gær og fram eftir kvöldi svo mér þótti ráðlegast að vera heima.

.[/quote]
Við tökum viljann fyrir verkið :)
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
Svara