Laugardagsföndrið III

Kanntu brögð og brellur sem fleiri hafa gagn af?
Svara
Passamynd
Árni H
Póstar: 1585
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Laugardagsföndrið III

Póstur eftir Árni H »

Í haust bræddi ég úr OS mótor, sem ég er með í Gremlin. Ég var búinn að pína þennan litla mótor alveg hroðalega áfram, yfirleitt eins "lean" og hægt var, nokkuð sem maður á alls ekki að gera. Ég varð mér úti um legur, sem pössuðu nokkurn veginn og ákvað að prófa að gera við ræfilinn.

Mér varð samt um og ó þegar ég opnaði mótorinn og skoðaði stimpilinn. Það er greinilegt að Gremlininn mokar drullunni beint upp í blöndunginn í lendingum og síðan kjamsar mótorinn á mold og sandi. Það er spurning hvort maður ætti að setja einhverskonar lofthreinsara á hann í sumar. Þetta eru þokkalegar rispur þarna:

Mynd

Mynd

Annars leit allt þokkalega út þannig að það var engu að tapa með að reyna viðgerð. Það þarf ekkert svakalega mikið afl til þess að knýja Gremlininn áfram!

Mynd

Ég prófaði svo mótorinn í gær og hann gengur lúsþýtt. Það má geta þess til gamans að inni í mótornum er nú dönsk króna, sem ég varð að grípa til að smíða varahlut úr!

Er maður nokkuð redneck?

Fyrir áhugasama læt ég fylgja myndbönd frá xjet, þar sem hann fer vel yfir það hvernig maður skiptir um legur í glóðarhausmótorum.





Kveðjur og gleðilegt nýtt ár,

Árni Hrólfur
Svara