Skundað var út á Arnarvöll í hádeginu í dag þar sem allt stefndi í að gærdagurinn væri að endurtaka sig veðurfarslega séð. Það gekk líka eftir og var mikið flogið næstu klukkutímana! Guðjón hélt áfram í flugkennslu, Ingólfur frumflaug Elan og formaðurinn tók góðar rispur.
Frábær dagur í alla staði og komin smá vorhugur í menn!
Þið eruð magnaðir!
Velkominn í hóp hinna "flognu" Guðjón Þú ert á grænni grein á Aircore-nýlendu Íslands með einvala gengi snillinga í kringum þig
Til lukku með daginn Ingólfur, Þetta er alveg ægifögur þota og greinilegt að Apríl er sko tekinn til að "massaþað"
Það vakti athyggli mína hvað brautarbrunið getur verið stutt ,mv. svo hægan vind (ef einhver var)
Kv. Lúlli