Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3740
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Gaui »

Hjá okkur gilda tryggingar félaga í FMFA á öllum skilgreindum flugmódel flugvöllum á landinu. Það eina sem við þurfum að gera er að framvísa skírteininu góða og við eru góðir til að fara (ílensk þýðing á "good to go")
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11584
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Sverrir »

Menn eru alltaf velkomnir í heimsókn en ef menn fara að koma í „reglulegar“ heimsóknir þá eru þeir vinsamlegast beðnir um að ganga í félagið ;)

Annars var líf og fjör í gærkvöldi, 12 manns í vagninum þegar mest var og pláss fyrir fleiri.
Veðrið var svo gott að síðustu menn sáust yfirgefa völlinn upp úr kl.23.
Fleiri myndir má finna í myndasafni félagsins.

Dreifingin var auðvitað betri en ég rak alla í annan endann fyrir myndatökuna.
Mynd


Þægilegt að vera með svona upphækkað hús þegar þarf að koma vélunum í skjól.
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui K
Póstar: 449
Skráður: 2. Maí. 2004 23:07:17

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Gaui K »

langflottastir!!

Gaui K
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11584
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Sverrir »

Ekki var Vöfflumót haldið á Arnarvelli en í staðinn var Pylsumót haldið í IKEA ;)

Allt á fullu.
Mynd

Innlit útlit hvað!?
Mynd

Spáð og spauglerað.
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Þórir T
Póstar: 837
Skráður: 17. Ágú. 2004 23:25:55

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Þórir T »

Vona að þið séuð búnir að fela fúavarnar dósirnar ... sællar minningar eða hitt og heldur.. þetta er stórglæsilegt hjá ykkur drengir, Til hamingju

mbk
Tóti
Smástund
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11584
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Sverrir »

Ekki seinna vænna að skella smá áburði á vallarsvæðið. Einn sekkur, 600 kg eða svo, var fórnarlamb áburðarfullra félagsmanna í kvöld.
Sekkurinn hvarf á rétt rúmum einum og hálfum klukkutíma.

Mynd

Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11584
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Sverrir »

Maggi Óla leit við með bílinn sinn seinnipartinn í dag og var farið í tilfæringar á litla kofanum.
Verst að við vorum flugvélalausir þvílík var blíðan.

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
maggikri
Póstar: 5826
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir maggikri »

Fleiri myndir af skúraflutningi. Hérna er Maggi Óla on the joystik. Við þökkum kappanum fyrir aðstoðina
Mynd
Skúrinn lítur bara vel út "under"
Mynd
Allt annað útsýni "sést í brautarendann" frá rampinum.
Mynd
Mynd
Mynd
Fleiri myndir verða á modelflug.net fljótlega.
Passamynd
Agust
Póstar: 2984
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Agust »

[quote=Sverrir]Ekki seinna vænna að skella smá áburði á vallarsvæðið. Einn sekkur, 600 kg eða svo, var fórnarlamb áburðarfullra félagsmanna í kvöld.
Sekkurinn hvarf á rétt rúmum einum og hálfum klukkutíma.[/quote]
Þetta er svaka mikið grasflæmi sem þið eruð með. Hæfilegt áburðarmagn af Blákorni er 20 grömm á fermetra eða 20 kg á hverja 1000 fermetra. Gott er að bera þetta magn á 2-3 á sumri til að grassprettan verði jöfn, eða 40-60g/m2 alls.

Miðað við þetta nægja 600kg á 600.000g/20g=30.000 fermetra eða 3 hektara ef áburðarmagnið er 20g á fermetra. Það er mátulegt á einn hektara (10.000 m2) ef borið er á þrisvar 20g/m2.

Ef maður ber óþarflega mikið á, þá verður uppskeran í samræmi við það og heyskapur góður :-)

Hvað eru þetta margir fermetrar af grasflöt hjá ykkur?

Iðavallabóndinn
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11584
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Sverrir »

Við bárum á um 7.000 fermetra af grasi og um 3.000 fermetra sem eiga að verða að grasi.
5.000 fermetrar af því eru torfur svo það veitir ekki af að örva þær dálítið ;)

Annars vorum við með Græði 7. Hver ætli finni upp á öllum þessum nöfnum ;)
Icelandic Volcano Yeti
Svara