Jæja, það styttist í Ljósnætur/Fréttavefsflugkomuna svo það var ekki seinna vænna að kalla saman vinnudag/kvöld út á Arnarvelli. Grasið var slegið, trén klippt, kaffi drukkið, orf bilanagreint, flugmódelum flogið og almenn tiltekt.
Albert tók sig til um daginn og heflaði veginn upp að Arnarvelli. Allt annað að sjá og keyra veginn um þessar mundir. Módelmenn eru minntir á að keyra varlega um veginn svo efnið endi ekki einhvers staðar lengst út í móa.
Þetta hefur verið viðburðaríkt ár, áhugasamir módelmenn sem og sagnfræðingar geta nú skemmt sér við að skoða gestabók Arnarvallar frá tímabilinu október 2007 til desember 2008
Að sjálfsögðu eru félagsmenn mis duglegir að skrifa í gestabókina og ekki láta allir (veður)lýsingar fylgja en menn sjá vonandi hve gaman er að geta skoðað þetta síðar meir og verða duglegri við að skrifa í bókina í framtíðinni!