Langar aðeins að fræðast með innkaup
Re: Langar aðeins að fræðast með innkaup
Þar sem ég hef nú aldrei pantað neit af internetinu og hef enga reynslu af því . Var nefnilega að velta fyrir mér kaupum af hobby king en langar að vita hvernig menn fara að ( Kann ekkert á þetta)
Jóhann Bragi Stefánsson
Re: Langar aðeins að fræðast með innkaup
Sæll Bragi
Þetta er í raun sáraeinfalt og skýrir sig nánast alveg sjálft ef maður byrjar.
Gerðu smá tilraun:
Veldu einhvern ódýran hlut á vefsíðunni. Sama hvað það er. Smellu á hann þannig að hann birtist á nýrri síðu. Smelltu nú á gula borðann [Add to cart]. Nú opnast ný síða. Efst á henni er annar gulur borði [View cart]. Hér getur þú séð hvað er í innkaupakörfunni. Farðu til baka á fyrri síðuna þegar þú ert ánægður og smelltu nú á gula borðann [Continue]. Ef þú ert þarna í fyrsta skipti þá þarft þú að skrá nafnið þitt og heimilisfang með því að smella á Create account. Þú þarft líka að skrá þar netfang þitt og velja Password. Nú ert þú orðinn meðlimur í HobbyKing klúbbnum . Það sem kemur á eftir skýrir sig sjálft...
Gættu þín á að velja Customs Declaration 100% (ekki 30%).
Passaðu vel að velja ódýra flutningsleið. Það er hægt að velja misdýra og misfljóta.
Ekki skrá kostanúmerið þitt núna, þetta er jú bara tilraun Smelltu á Cancel og hættu.
Ég hef valið að fá mér sérstakt fyrirframgreitt kreditkort (Mastercard Plus) sem ég nota þegar ég panta. Ef ég ætla að panta fyrir t.d. 20.000 krónur, þá byrja ég að millifæra inn á það t.d. 25.000 kr. í heimabankanum. Hef aldrei miklu meiri innistæðu á kortinu en ég er að panta fyrir. Mér finnst það öruggara að nota svona fyrirframgreitt kort en venjulegt þegar ég panta á netinu. Þú gætir líka valið að nota PayPal https://www.paypal.com/is.
Þetta er allt mjög auðvelt þegar maður hefur prófað...

Þakka þér kærlega fyrir þetta Ágúst Þetta hjálpaði helling . Núna er bara að fara í það að redda sér svona korti og panta
Jóhann Bragi Stefánsson
Re: Langar aðeins að fræðast með innkaup
PayPal er einfalt og öruggt, margir versla einungis með PayPal á netinu.
Kv. Guðjón Bergmann, s: 6690069
---
"Ég vona að dag einn verði ég eitthvað meira en meðlimur" - Guðjón Bergmann, meðlimur

- Björn G Leifsson
- Póstar: 2914
- Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45
Re: Langar aðeins að fræðast með innkaup
[quote=Agust]
...
Passaðu vel að velja ódýra flutningsleið. Það er hægt að velja misdýra og misfljóta...
[/quote]
Góðar leiðbeiningar. Þarft ekki að vera feiminn að prófa þetta.
Hef pantað allnokkrum sinnum frá HK og einu vandamálin hafa verið þegar ég hef valið EMS sem flutningsleið. Mæli ekki með því þó það eigi að heita "Express". Dýrt og óöruggt.
Dótið er reyndar mis gott sem maður finnur þarna. Gæðin fylgja oft verðinu.

"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
H.L. Mencken
Re: Langar aðeins að fræðast með innkaup
[quote=Björn G Leifsson]
Dótið er reyndar mis gott sem maður finnur þarna. Gæðin fylgja oft verðinu.[/quote]
Sumt er algjört drasl, en margt vandað. Þú gætir jafnvel spurt ráða hér ef þú hefur hug á einhverju. Það er frekar líklegt að einhver hafi þegar pantað þannig og veit hvort það er peninganna virði. Sjálfur hef ég pantað nokkuð oft frá HobbyKing. Ég hef t.d. rekið mig á að ódýr hleðslutæki geta verið drasl og nánast hættuleg þegar verið er að hlaða LiPo, en dýrari geta verið skrambi góð.

Það gétur hjálpað að lesa umsagnirnar og umræðurnar um hlutina neðst á síðuni, það eru yfirleitt einhverjur sem skrifa annað en hinir þannig að maður verður að lesa nokkur til að finna út hvað er gott og hvað er vont.
"I'm in love whit my bed, we're perfect for eachother,
but my alarm clock just doesn't seem to want us together.
Jealous whore."
Adam Sandler