Það var vinnudagur á Arnarvelli í gær. Gunni valtaði grasbrautirnar og hóaði svo í Guðna, Berta og mig(Gústa) um kvöldmatarleitið til að bera á. Gunni var búinn að ákveða að það mundi rigna næstu daga og hann ræður því sko, enda fór að rigna um leið og við vorum hálfnaðir að bera á. Máttur Gunna er mikill
Ég, Maggi og Gunni skelltum okkur í málaragallann í dag og sulluðum litum á brautirnar og pittinn. Vonum að Steini verði sáttur þegar hann kemur að taka verkið út.
Smá munur eftir 6 ára veðrun.
Tveir góðir og einn myndasmiður.
Svart og hvítt, svona næstum því.
Smá kaffi á milli lita.
Gulir og glaðir.
Allt annað að sjá þetta!
16 lítra af hvítum og 2 lítra af gulum þarf á völlinn.
Ég og Guðni drifum okkur út á völl seinni partinn, það styttist óðfluga í 20 ára afmælisflugkomu félagsins og það voru nokkrir hlutir á listanum sem átti eftir að haka við! Þar á meðal samsetningar- og gangsetningarborð sem þurftu smá viðhald. Þetta er náttúrulega engin ending á samsetningarborðinu, orðið ~25 ára gamalt og búið að nota báðar hliðar á borðplötunni!!!
Gamla platan fokin af.
Smiðsaugað klikkar ekki.
Vandvirkur strákurinn.
WTF, komdu með teikninguna Sverrir, kannt ekkert á þetta...
Flott hjá ykkur. Hlakka til að mæta í afmælið
Kv Messarinn
Guðmundur Haraldsson Flugmódelfélag Akureyrar
A RAF engineering officers joke: Whats the difference between a fighter pilot and his aircraft? The plane stops whining when you shut down the engines.