33% Kaiser Ka-3

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Fridrik
Póstar: 119
Skráður: 25. Okt. 2007 21:10:28

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Fridrik »

Glæsilegt Sverrir, gaman verður að skoða þessa hjá þér
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11503
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Sverrir »

V-stélið að taka á sig mynd.
Mynd

Nokkrum sögunum síðar er komið smá safn af rörum, lengstu eru 27 cm.
Mynd

Smá Hysol til að fá festu í málið.
Mynd

Klemmum endann örlítið saman svo innra rörið renni ekki alla leið.
Mynd

Komin smá svipur á vélina.
Mynd

Mynd

Hobbyking selur MKS DS6125 servó undir sínu nafni, 5.5kg og ættu að duga vel í stélinu.
Mynd

Styttist í verklok á stélinu, vantar bara klæðningu á neðri hlutann og að ganga frá lúgu fyrir servóið. :)
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Flugvelapabbi
Póstar: 589
Skráður: 2. Des. 2008 16:53:06

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Flugvelapabbi »

Ættlar þu að fljuga um helgina þetta skot gengur hja þer.

Kv
Einar Pall
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11503
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Sverrir »

Aldrei að vita! ;)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3680
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Gaui »

Sverrir -- bara smá ábending. Það er ekki góð hugmynd að klemma rörið svona saman til að innra rörið renni ekki í gegn. Það sem gerist er að innra rörið þrýstist í þann hluta sem er klemmdur og festist þar.

Þú mátt spyrja mig hvernig ég veit þetta :)

Annars er þetta stórskemmtilegur þráður og athuglisvet módel að smíða. Var svona sviffluga til hér á landi eða ætlarðu að nota fyrirmynd úr heitu löndunum?

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11503
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Sverrir »

Gerir lítið til þó það gerist, jafnvel möguleiki að ég lími rörin í stélfletina til að koma í veg fyrir að þau fari á flakk! :)

Það var ekki til Ka-3 hér heima, það næsta sem kemst henni er Ka-4 en þær voru alla vega þrjár hér á landi. Það er einmitt ein á flugsafninu hjá ykkur, TF-SBE. Þannig að ef einhver er í stuði og á leið þarna inn á næstunni þá væri gaman að sjá myndir innan úr henni.

Þar sem engin svona vél hefur verið til hér heima þá verð ég talsvert frjálslegur í litavali og skráningarnúmeri. Og svona ef einhver skyldi vera að velta því fyrir sér eftir að lesa myndatextana hér að neðan þá heitir vélin fullu nafni Schleicher Ka-4 Rhönlerche II.

Myndir úr hinu mikla fræðiriti Svifflugur á Íslandi sem Leifur Magnússon tók saman. Fróðleg lesning fyrir alla þá sem hafa smá áhuga á flugi og sögu þess.

Mynd
Mynd
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3680
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Gaui »

[quote=Sverrir]Þar sem engin svona vél hefur verið til hér heima þá verð ég talsvert frjálslegur í litavali og skráningarnúmeri. [/quote]

Þýðir það að þú ætlir að skálda lit og númer? Það er auðvitað ótækt! ;)

Hér er síða með nokkrum flugum handa þér, þar með a.m.k. ein mynd af mælaborði.

http://www.segelflug.de/segelflieger/ra ... thumb.html

Sjálfum finnst mér D-8899 og D-6167 flottastar og á hæla þeirra kemur D-7712.

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11503
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Sverrir »

Þetta er svona eins og að benda Páfanum á vefsíðu Vatíkansins! ;)

Öll þessi skemu eru á hliðsjónarlistanum góða. Athugaðu að 7712 er með tvö mismunandi skemu þarna! :D

Þekki mælaborðið á Ka-3 en hef hins vegar áhuga á séríslenskum einkennum á mælaborði Ka-4 ef einhver eru.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Haraldur »

Ég sé að það er hægt að nota hurðir til ýmissa hluta.
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11503
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Sverrir »

Með betri smíðaborðum sem þú færð.
Icelandic Volcano Yeti
Svara