Upphafspósti hefur verið breytt með nýjum upplýsingum varðandi uppáhaldshelgi okkar allra
En kominn tími til að skjóta inn smá fréttum úr herbúðum okkar Vestfirðinga, höfum verið óvenju þögulir hér á spjallinu undanfarið. Undirbúningur fyrir flugkomuna hefur gengið framar vonum, og næsta vers hjá oss er að koma hinni einu sönnu Módelsmiðju í sýningarhæft ástand fyrir gesti vora. Það mun gerast á morgun, laugardag.
En á sunnudaginn verða brettar upp ermar og farið af stað með kústana, eftir erfiðan vetur er virkilega þörf á að sópa okkar heittelskaða Sandodda, mæting verður úti á velli kl. 16:00 með strákústa að vopni, sjálfboðaliðar sem mæta snemma velkomnir
Semsagt allt á réttu róli, sjáumst eftir viku
