Veðrið í dag og á morgun...

Kanntu brögð og brellur sem fleiri hafa gagn af?
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Veðrið í dag og á morgun...

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Það er bara tvenns konar veður í Eyjafirði, gott og mjög gott.

En fyrir okkur hina sem þurfa flóknari mælitæki þá er þetta hér ágætis aðferð:

Mynd

gallinn er bara sá að ég bý í GRafarvoginum en uppáhaldsflugvöllurinn er í öðrum heimshluta þar sem ríkir allt annað veðrakerfi. Þess vegna hef ég verið að hugsa um að setja upp svona veðurathugunarstöð á Hamranesi og vefmyndavél til þess að geta séð úr þægindum heimasófans hvernig veðrið er þarna hinum megin við siðmenninguna.
Svona svipað og þeir gera á Borgarfirði Eystri til að fylgjast með bátunum í Höfn sem er alllangt frá þorpinu.
:D :D :D
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
kip
Póstar: 564
Skráður: 24. Apr. 2006 13:44:49

Re: Veðrið í dag og á morgun...

Póstur eftir kip »

:P :P [quote=Björn G Leifsson]Svona svipað og þeir gera á Borgarfirði Eystri til að fylgjast með bátunum í Höfn sem er alllangt frá þorpinu.
:D :D :D[/quote]
Það er líka hægt að fylgjast með veðrinu á nýju tröppunum mínum á Akureyri hér: http://heima.kip.is og stundum má sjá stætisvagna renna afturábak hér: http://vefmyndavel.akureyri.is/ :D
Kristinn Ingi Pétursson
Netfang: kip[hjá]kip.is | vefsíður: www.kip.is og www.stafn.is | Sími: 650 5252
Svara