Eftir frækilegan könnunarleiðangur sem fékk mestu hetjur til að brynna músum þá var skundað út á Stapa í kvöld og hangið tamið!
Steini og Gústi skemmtu sér í hanginu, annars vegar með Kötuna og svo Síren frá Miklu Vélum. Áhugavert að sjá muninn á gamla og nýja tímanum, þó Síren sé ekki eftirlíking af full skala vél, þá var hún eins og sportbíll við hliðina á fólksbíl og sýnir glögglega muninn á nýja og gamla.
Áhugasamir geta séð fleiri myndir hér.
Flugtak!
Ekki slæmt!
Katan er stórglæsileg!
Samflug, sjá líka lengri samflugssyrpu í myndasafni.
Á leið til lendingar.
Siren var ekki síðri!
Keilir var á sínum stað.
Horft yfir sundin blá!
Horfðu til himins...
Ég lét mína vél bara vera í bílnum!
Lengra vídeó dettur svo inn fljótlega.
Stapinn - 29.apríl 2013
Re: Stapinn - 29.apríl 2013
Icelandic Volcano Yeti
Re: Stapinn - 29.apríl 2013
Frábært! Það leynast greinilega víða ágætar aðstæður fyrir hangflug. Ekki er verra að fá svona sólarlagsbirtu og alles í kaupbæti
Re: Stapinn - 29.apríl 2013
[quote=Sverrir]Ég lét mína vél bara vera í bílnum![/quote]
Á að fara að sprauta? Það fer að líða að Patró International og þú skoraðir á mig að vera tilbúinn með Baby þá og ætlaðir að vera með Ka3 þar líka!
Ekkert framsóknarbakk hér, Sverrir minn!
Á að fara að sprauta? Það fer að líða að Patró International og þú skoraðir á mig að vera tilbúinn með Baby þá og ætlaðir að vera með Ka3 þar líka!
Ekkert framsóknarbakk hér, Sverrir minn!
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: Stapinn - 29.apríl 2013
Jú, jú það fer að koma litur á hana en nú ert þú að leggja mér orð í munn minn kæri. Annars þekkirðu mottóið: Lofa engu, svík ekkert!
Icelandic Volcano Yeti
Re: Stapinn - 29.apríl 2013
Hvaða vindátt passar þarna og hvert fer maður?
Re: Stapinn - 29.apríl 2013
Norðlægar áttir, Stapinn er nú ekki það stór, fínt að taka fyrstu mislægu gatnamótin eftir að komið er framhjá Grindavíkuafleggjara. Þér er líka velkomið að vera í sambandi við mig ef þú ætlar að fá þér bíltúr hingað á svæðið. Við getum líka boðið upp á sunnlægari áttir.
Icelandic Volcano Yeti