Sælir.
Hefur einhver hérna verslað við Hobby-King á netinu og notað Western Union til þess ?
Ef svo er, er það öruggt ?
Ég get nebblega ekki notað Paypal
Nonni
Hobby-King verslun
Re: Hobby-King verslun
Verslað mikið og nota alltaf PayPal. Þeir eru fínir. Fullt af ódýru dóti. En bera þarf í huga að þú getur fengið gallaða vöru því oft eru þetta hlutir sem hafa ekki farið í gegnum ítarlega gæðaskoðun eins og er með hluti frá t.d. Futaba osvfr.
Re: Hobby-King verslun
peypal virkaði hldur ekki hjá mér, þá borgaði ég bara beint með vísa og búinn að versla mikið frá þeim
Re: Hobby-King verslun
Þegar ég kaupi á netinu, þá nota ég stundum PayPal og stundum fyrirframgreitt kreditkort.
Það getur munað á verði vörunnar eftir því hvor leiðin er valin. Það er stundum tekið fram.
Þegar ég nota fyrirframgreitt kort (mitt kallast Mastercard Plús) þá millifæri ég yfir á kortið í íslenskum krónum rúmlega það sem þarf til að greiða fyrir verð vörunnar og sendingu. Þá er erfitt að misnota kortið.
Sjá: https://www.kreditkort.is/kortin/forsidu-kort/nr/91
"Fyrirframgreitt kort en með öllum kostum kreditkorts, fríðindi og engin færslugjöld.
Kortið hentar einkar vel til dæmis þegar verslað er á Netinu. Höfð er sú upphæð á kortinu sem verslað mun vera fyrir og engin hætta er því á að tekið sé of mikið út af kortinu eða það misnotað.
Engin færslugjöld eru greidd af fyrirframgreiddum kortum og því hægt að spara töluverða upphæð á því.
Það er auðvelt að leggja inn á fyrirframgreidd í gegnum heimabanka. Farið er í gegnum AB gíróseðil í gegnum heimabanka og innborgunin berst okkur á örfáum mínútum.
Fyrirframgreidd kort eru alþjóðleg MasterCard greiðslukort og virka því út um allan heim"