Flygildi eða vélfluga...?

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Passamynd
Tómas E
Póstar: 69
Skráður: 26. Júl. 2011 01:26:31

Re: Flygildi eða vélfluga...?

Póstur eftir Tómas E »

Hvað um "ómannað loftfar" ? :)
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Flygildi eða vélfluga...?

Póstur eftir Agust »

Það er held ég mikilvægt að finna gott og lipurt orð sem er lipurt og gegnsætt, þ.e. lýsir vel fyrirbærinu. Eitthvað sem ekki er hægt að tengja við hernað. Gjarnan má orðið flug eða skylt á einhvern hátt vera í orðinu. Eitthvað orð sem lítið er í notkun. Orðið myndi þá ná yfir svona tæki hvort sem það er vængjað eða einhvers konar þyrla.

Hvað dettur ykkur í hug?

Á leiðinni út á Hamranes í hádeginu áðan var ég að velta þessu fyrir mér og kom þá í hugann orðið flugkanni.

Flugkanni lýsir akkúrat fyrirbærinu sem flýgur um og leitar að týndu fólki, tekur loftmyndir vegna landmælinga eða framkvæmda, eða tekur kvikmyndir úr lofti. Allt tengist það könnun á einhvern hátt.

Flugkanni, hvernig hljómar það?

Orðið er laust...
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
lulli
Póstar: 1292
Skráður: 1. Des. 2006 21:14:09

Re: Flygildi eða vélfluga...?

Póstur eftir lulli »

verd ad vidurkenna ad ''kopter'' er byrjad ad síjast inn í hugtakid fyrir thesskonar tegund flugfars.
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
Svara