Flugmódelklúbburinn Falken á Sjálandi(nálægt Slagelse) heldur fjögurra daga flugkomu í kringum Uppstigningardag ár hvert. Þess utan er þó nóg um að vera og fjölmargir atburðir yfir árið og höfum við séð aðeins til uppátækja þeirra í gegnum tíðina. Nokkrir af þotufélögum mínum eru í klúbbnum, og fleiri voru búnir að boða sig, svo það var upplagt að leigja sér bíl og kíkja við hjá þeim fyrst maður var í nágrenninu... hvað annað ætti maður svo sem að gera í Baunalandi!?
Það eru engar takmarkanir á því hverju menn mega fljúga, markmiðið er bara að hafa gaman af og hittast, en þó er hefð fyrir því að á fimmtudeginum fá svifflugur aðeins að njóta sín og forgang í loftið. Óneitanlega setja vindmyllurnar sem eru við hliðina á flugvellinum smá svip á hann, þetta eru 70 metra háir turnar og með blöðunum ná þeir einhverja 120 metra upp í loftið og vega hátt í 270 tonn með öllu heila klabbinu.
Um 25 hjólhýsi og tjaldvagnar voru á svæðinu svo flogið var vel fram í myrkur öll kvöld ásamt því sem að á laugardagskvöldinu var sameiginlegur kvöldverður snæddur á svæðinu. Veitingasalan var einnig til fyrirmyndar en hægt var að fá grillaðar pylsur, kökur, snakk, sælgæti, ávexti, te, kaffi, gos og bjór allan daginn gegn vægri greiðslu. Módelbúð var einnig á staðnum en HobbyKarl kom á hjólhýsi og sló upp búð á svæðinu, ég er ekki frá því að hann hafi næstum því náð Jóni í vöruúrvali.
Staðarsjónvarpið mætti á svæðið og tók m.a. viðtal við fyrrum formann og einn stofnenda klúbbsins.
Áhugasamir geta séð fleiri myndir í myndasafninu.
Fínasta dráttarvél sem var vel notuð.
Hvað skyldi vera út á vellinum?
Skyrunner 100 frá Airworld, þessi náði 500 km/klst, flaug 1000 metra út og 800 metra upp þegar mest var. Venjulega er mælt með Jetcat P20 en í þessari er P100!
Stór Krill Extra...
Eða hvað, hún minnkar nú talsvert við hliðina á vindmyllunni.
1/4 Cub frá Hangar 9 með Mintor 22cc bensínmótor.
Menn hætta ekkert að leika sér...
FeiBao Mirage 2000 en við vorum einmitt samferða heim af JetPower í fyrra.
Tomahawk L39 Albatros með Jetcat P300.
Eitt stykki Graupner Hotspot.
E-flite L-13 Blanik.
Gamall kunningi!
Sennilega dýrasta „matborðið“ á svæðinu sem Lars sat við!
Raðfullnægingar, CARF P-47, Moki 150 og fjögurra blaða Solo spaði sáu um hávaðann.
Úbbbbs!
Annar gamall kunningi!
Rafmögnuð borð.
HobbyKarl á svæðinu.
MFK Falken, Danmörku - 29.maí til 31.maí 2014
Re: MFK Falken, Danmörku - 29.maí til 31.maí 2014
Icelandic Volcano Yeti
Re: MFK Falken, Danmörku - 29.maí til 31.maí 2014
Þeir eru flottir þarna í Fuglebjerg! Tókst raðsmíðin á svifflugunum hjá þeim eða floppaði verkefnið í ár?
Re: MFK Falken, Danmörku - 29.maí til 31.maí 2014
Veisluhöld 123 veisluhöld!!!!!
Þeir eru svalir þessir frændur okkar, þökk sé þér Sverrir fyrir deilinguna.
Kv. Lúlli.
Þeir eru svalir þessir frændur okkar, þökk sé þér Sverrir fyrir deilinguna.
Kv. Lúlli.
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
Flugmódelfélag Suðurnesja
Re: MFK Falken, Danmörku - 29.maí til 31.maí 2014
Takk, takk.
[quote=Árni H]Þeir eru flottir þarna í Fuglebjerg! Tókst raðsmíðin á svifflugunum hjá þeim eða floppaði verkefnið í ár?[/quote]
Held alveg örugglega að það sé ekki fyrr en á síðsumarssamkomunni þeirra.
[quote=Árni H]Þeir eru flottir þarna í Fuglebjerg! Tókst raðsmíðin á svifflugunum hjá þeim eða floppaði verkefnið í ár?[/quote]
Held alveg örugglega að það sé ekki fyrr en á síðsumarssamkomunni þeirra.
Icelandic Volcano Yeti
Re: MFK Falken, Danmörku - 29.maí til 31.maí 2014
Icelandic Volcano Yeti