3D Kóngurinn 2014

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Passamynd
Örn Ingólfsson
Póstar: 271
Skráður: 24. Apr. 2012 15:12:29

Re: 3D Kóngurinn 2014

Póstur eftir Örn Ingólfsson »

Sælir félagar nú fer að styttast í stóra daginn.

Keppni verður haldin 16. júlí á Hamranesflugvelli.
Ég vil minna menn á að skrá sig sem allra fyrst.
Skráning fer þannig fram að þú sendir mér línu og segir mér að þú viljir taka þátt.
Tölvupóst skal senda á orn@hljodx.is

Hér kemur svo dagskrá og útskýringar á keppninni.


18:30-19:30 Mæting keppanda og æfingaflug.
19:40 Allir í pitt við sínar vélar.
19:40-19:50 Tíma til þess að múta dómurum.
19:50 Setning 3D Kóngsins.
20:00 (Freestyle)
20:30 One Trick.
Þegar allir hafa lokið sínu prógrami þá hefur dómnefnd fimmtán mínútur til þess að ráða úrslitum.
21:00 úrslit kynnt.


Freestyle:
Hver keppandi gefur til kynna hvenær hans prógram byrjar og endar, þó að hámarki 3 mínútur.
Hver keppandi hefur 3 mínútur til umráða, eftir að vélin hefur verið sett í gang, til þess að koma sér út á braut og í loftið.
6 mínútur í heild.
það má ekki gangsetja sína vél fyrr en keppandinn á undan hefur lokið sínu prógrami.


One Trick:
Hver keppandi gefur til kynna hvenær hans prógram byrjar og endar, þó að hámarki 30 sekúndur.
Hver keppandi hefur 3 mínútur til umráða, eftir að vélin hefur verið sett í gang, til þess að koma sér út á braut og í loftið.
3 mínútur og 30 sekúndur í heild.
það má ekki gangsetja sína vél fyrr en keppandinn á undan hefur lokið sínu prógrami.


Hoover Drottningin 2014:
Það verður veitt sérstök viðurkenning fyrir það hoover sem dómnefndinni lýst best á.
Tekið verður mið af eftirfarandi:
Hæð frá jörðu.
Stöðugleiki vélarinnar.


Aðaldómari er:
Sverrir Gunnlaugsson og fer hann með alræðisvald.

Aðstoðardómara eru:
Jón V Pétursson
Einar Páll Einarsson


Ef það koma upp einhverja spurningar þá megið þið endilega hafa samband beint við mig.

Örn Ingólfson
Sími 8580962
orn@hljodx.is


Ég áskil mér þann rétt að fresta keppni hvenær sem er ef veður verður slæmt.
Passamynd
gudjonh
Póstar: 847
Skráður: 27. Feb. 2008 09:07:06

Re: 3D Kóngurinn 2014

Póstur eftir gudjonh »

Til lukku með planið. 3D er ekki mitt, en hluti af sportinu. Planið virðist flott. Ekkert gerist nema "einhver" drívi í hlutunum. Gangi ykkur vel!

Guðjón
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: 3D Kóngurinn 2014

Póstur eftir Haraldur »

[quote=gudjonh]Til lukku með planið. 3D er ekki mitt, en hluti af sportinu. Planið virðist flott. Ekkert gerist nema "einhver" drívi í hlutunum. Gangi ykkur vel!

Guðjón[/quote]

En þú kemur og horfa á ?
Passamynd
maggikri
Póstar: 5603
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: 3D Kóngurinn 2014

Póstur eftir maggikri »

[quote=Haraldur][quote=gudjonh]Til lukku með planið. 3D er ekki mitt, en hluti af sportinu. Planið virðist flott. Ekkert gerist nema "einhver" drívi í hlutunum. Gangi ykkur vel!

Guðjón[/quote]

En þú kemur og horfa á ?[/quote]

Hver á þá að taka þátt ef allir ætla að horfa á! ?
kv
MK
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: 3D Kóngurinn 2014

Póstur eftir Haraldur »

[quote=maggikri][quote=Haraldur][quote=gudjonh]Til lukku með planið. 3D er ekki mitt, en hluti af sportinu. Planið virðist flott. Ekkert gerist nema "einhver" drívi í hlutunum. Gangi ykkur vel!

Guðjón[/quote]

En þú kemur og horfa á ?[/quote]

Hver á þá að taka þátt ef allir ætla að horfa á! ?
kv
MK[/quote]

Maggi! Ekki snúa út úr. Guðjón var að segja að hann væri ekki fyrir 3D og mun þar með ekki taka þátt. En hann ætti samt að koma og horfa á þá sem taka þátt og þannig skapa stemmingu. :-)
Passamynd
Jónas J
Póstar: 528
Skráður: 21. Júl. 2009 16:57:14

Re: 3D Kóngurinn 2014

Póstur eftir Jónas J »

Ég ætla að reyna að mæta (horfa á) :)
Í pásu :)

Kveðja Jónas J
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: 3D Kóngurinn 2014

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Klappliðið! :D
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
gudjonh
Póstar: 847
Skráður: 27. Feb. 2008 09:07:06

Re: 3D Kóngurinn 2014

Póstur eftir gudjonh »

Já, svokallað 3D er ekki mitt áhugamál. Ég kem ekki að horfa á. Endurtek: til lukku með planið og gangi ykkur vel!!
Guðjón
Passamynd
Jónas J
Póstar: 528
Skráður: 21. Júl. 2009 16:57:14

Re: 3D Kóngurinn 2014

Póstur eftir Jónas J »

Lítur ágætlega út með veðrið (allavega samkvæmt Norsku) :)
Mynd
Í pásu :)

Kveðja Jónas J
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: 3D Kóngurinn 2014

Póstur eftir Haraldur »

Og þetta var staðfest í veðurfréttum eftir 10 fréttir í kvöld.
Svara