Framleiðsla á servósnúrum

Eru ekki allir í stuði!?
Passamynd
Agust
Póstar: 2984
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Framleiðsla á servósnúrum

Póstur eftir Agust »

Mér skilst að einhverjir hafi verið að framleiða eigin servósnúrur.

Hverjir selja bestu tæki og tól fyrir svona heimilisiðnað?
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11420
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Framleiðsla á servósnúrum

Póstur eftir Sverrir »

Það er svo langt síðan ég keypti mitt að seljandinn er ekki lengur til! ;)

En þú þarft fyrst og fremst góða krumputöng og svo gildir það sama í þessu og mörgu öðru, þú þarft að borga aðeins fyrir gæðin þegar kemur að pinnum og servótengjum, svo má ekki gleyma vírnum. HobbyKing selur líka pinna og tengi ef menn vilja skoða ódýrari leiðir, kannski fínt að ná sér í hluti til að æfa sig á þaðan.

Sé reyndar núna að ég sit á gullpotti en servósnúrukeflið mitt er búið að hækka um 244% í verði á tveim árum, fínasta ávöxtun það!
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Spitfire
Póstar: 412
Skráður: 6. Ágú. 2006 12:16:01

Re: Framleiðsla á servósnúrum

Póstur eftir Spitfire »

Thunderbolt RC virðist hafa ágætis úrval af græjum til servosnúrugerðar, bjóða m.a. upp á Ashlok tengi og fleira.
Hrannar Gestsson, Patreksfirði

The knack of flying is learning how to throw yourself at the ground and miss.
Douglas Adams
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Framleiðsla á servósnúrum

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Keypti mér töng og birgðir af tengjum fyrir nokkrum árum. Ómetanlegt.
Fann þessa síðu nýlega og er að spá í að leggja í pöntun af ýmsu dóti þar: https://www.pololu.com/category/19/connectors
Þarna fást tangir og efni. Hef ekki prófað að panta þarna ennþá en er aðspá í að bæta í mitt safnið t.d. einföldum, tvöföldum, fjórfölum hulsum og ýmsu rafeindadóti.
Þarna fást líka JST tengi, Tamya, XT50 og fleira sem gott er að eiga
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: Framleiðsla á servósnúrum

Póstur eftir Haraldur »

Íhlutir áttu lengi vel servosnúrur í metra tali.
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Framleiðsla á servósnúrum

Póstur eftir einarak »

[quote=Haraldur]Íhlutir áttu lengi vel servosnúrur í metra tali.[/quote]

og eiga enn!
Passamynd
Agust
Póstar: 2984
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Framleiðsla á servósnúrum

Póstur eftir Agust »

Ætli þeir eigi nokkuð servótengi og krumptangir?

Annars var ég að googla í dag og rakst þá á lítið fyrirtæki sem heitir Hansen Hobbies.
http://www.hansenhobbies.com

Þeir eru með tengi, tangir og tilheyrandi: http://www.hansenhobbies.com/products/connectors/

Einnig ágætis pdf skjal með kennsluefni: http://www.hansenhobbies.com/products/c ... ectors.pdf
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Framleiðsla á servósnúrum

Póstur eftir einarak »

gætu átt einhverjar krumptangir, en engin servotengi eins og við viljum hafa þau.
Passamynd
Agust
Póstar: 2984
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Framleiðsla á servósnúrum

Póstur eftir Agust »

Ég þakka ykkur öllum ábendingarnar. Ég endaði með því að panta kit á $95 frá Hansen Hobbies.

http://www.hansenhobbies.com/products/c ... ck_drcck1/

Það verður mikill munur að geta útbúið snúrurnar sjálfur.
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Framleiðsla á servósnúrum

Póstur eftir einarak »

Þa hefuru keipt sett með strippara? Það er vel valið...
Svara