Patreksfjörður International - því miður

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
mitsubishi
Póstar: 2
Skráður: 20. Jan. 2014 21:50:15

Re: Patreksfjörður International - því miður

Póstur eftir mitsubishi »

Okkur félögunum í Módelsmiðju Vestfjarða þykir það leitt, en því miður getum við ekki haldið okkar flugkomu betur þekkt sem Patreksfjörður International árið 2015. Velt var hverjum steini til að finna lausn, en ekkert gekk.

Síðasta ár aflýstum við flugkomunni vegna þess að eitt fyrirtæki var að nýta flugstöðina og brautina við samsetningu laxeldiskvía, en nú er staðan sú að þrjú fyrirtæki í laxeldinu eru í biðröð til að nýta aðstöðuna á vellinum til framleiðslu eldiskvía.

Það þýðir að flugstöðin er út úr myndinni auk þess sem fleiri tæki eru á brautinni en áður.

Með bestu kveðju,
Ægir Þór, formaður MSV
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Patreksfjörður International - því miður

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Það var leitt að heyra.

Wembley er væntanlega ekki í boði heldur?
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Árni H
Póstar: 1604
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Patreksfjörður International - því miður

Póstur eftir Árni H »

Ja hérna - leitt að heyra :(
Passamynd
Ágúst Borgþórsson
Póstar: 933
Skráður: 3. Jún. 2007 10:52:48

Re: Patreksfjörður International - því miður

Póstur eftir Ágúst Borgþórsson »

Þar fór það :( Þið verðið bara að gera ykkur ferð í blíðuna hjá okkur í sumar :cool:
Kv.
Gústi
Svara