Stórskalaflugkoma EPE - 13.ágúst 2016

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Stórskalaflugkoma EPE - 13.ágúst 2016

Póstur eftir Sverrir »

Stórkostlegur dagur að baki, mikið flogið, veður milt og flott, Steve Holland í heimsókn og Fjarkinn kominn með fjögur flug á ferilskrána! Steve kom gagngert í heimsókn til að aðstoða Birgi við flugið á Fjarkanum og skilaði svo sannarlega sínu í flugum dagsins.

Frumflugið var þreytt snemma í morgun, eftir ítarlegan undirbúning síðustu vikna(og ára). Eftir gangsetningu á hreyflunum fjórum var ekið sem leið lá í brautarstöðu, flapar stilltir á flugtaksstillingu og bensíngjöfin sett rólega í botn. Fjarkinn æddi af stað niður eftir flugbrautinni og hóf sig svo tignarlega til flugs. Eftir klifur í hæð þá kom í ljós að sex klikk þurfti á hæðarstýristrimmið og tvö á hallastýristrimmið og þá flaug Fjarkinn eins og engill um loftin blá. Ekki slæmur árangur þar sem módelið er hannað frá grunni.

Flug tvö og þrjú gengu snurðulaust fyrir sig og eftir smá takkaleikfimi tókst að fá öll hjólin þrjú til að fara upp á sama tíma og tók hún sig mjög vel út í loftinu. Fljótlega eftir flugtak í fjórða fluginu nefnir Steve það að hann sé farinn að þurfa að halda inn talsverðu hallastýri svo skellt var í framhjáflug og kom þá í ljós að hægri flapinn hafði losnað upp og hékk niður hallastýrismegin á vængnum. Þá var ekki annað að gera en að stytta flugið og koma inn til lendingar án flapa. Það gekk líka svona ljómandi vel og voru þessi fjögur flug látin duga á Fjarkanum að sinni.

Aðrir viðstaddir flugmódelmenn léttu sitt að sjálfsögðu ekki eftir liggja og flugu út í eitt fram eftir degi. Vöfflukaffið var svo að sjálfsögðu á sínum stað hjá Flugvélapabba og tóku menn hraustlega til við snæðingin og kaffidrykkjuna. Minni háttar óhapp varð þegar flugmódel eitt missti vænginn á flugi en eitthvað skorti upp á vængbolta öðru megin í því, smá viðgerðir og það verður eins og nýtt.

Fleiri ljósmyndir og vídeó koma svo fljótlega.


Birgir innilega til hamingju með frumflugið, glæsilegasta flugmódel landsins og þótt víðar væri leitað!



Stærri útgáfa af myndinni.
Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Samflug á full skala Super Cub og vængstýfðum Cub í hálfum skala (1:2).
Mynd

Mynd

Mynd


Ein myndavélin mín stakk af í Fjarkafluginu, Jón Gunnar, Gummi og Árni fá þakkir fyrir aðstoðina við leitina og Jón Gunnar fær sérstakar þakkir fyrir að finna vélina. :)

Mynd

Mynd

Mynd


Það var nóg um að vera á stórskalaflugkomunni eins og sjá mátti í 2016 annálnum og auðvitað þurfti að klippa efnið til svo það passaði þar inn.

Hér er því komið vídeóið frá stórskalaflugkomunni í allri sinni dýrð!



Hins vegar er dýrðin svo mikil að til þess að hún njóti sín til fulls þá er hér nokkur af stærri atriðunum í öllum sínu veldi.


* Óklippt er auðvitað ekki réttnefni, directors edition er kannski réttara.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
gudjonh
Póstar: 847
Skráður: 27. Feb. 2008 09:07:06

Re: Stórskalaflugkoma EPE - 13.ágúst 2016

Póstur eftir gudjonh »

Já til lukku Birgir. Er ekki stutt í "fermingarveislu"???????????
Guðjón
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Stórskalaflugkoma EPE - 13.ágúst 2016

Póstur eftir Gaui »

Ég tók yfir 700 myndir: hér eru þrjár:Mynd

Mynd

Mynd

Hvor er nær?

Mynd

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Elson
Póstar: 221
Skráður: 28. Feb. 2010 14:50:11

Re: Stórskalaflugkoma EPE - 13.ágúst 2016

Póstur eftir Elson »

Til hamingju með þennann stóra áfanga, stórglæsileg vél og ekki síður flott á flugi.
Takk fyrir skemmtilegan dag.
Bjarni Valur
Passamynd
Böðvar
Póstar: 475
Skráður: 17. Apr. 2004 09:20:53

Re: Stórskalaflugkoma EPE - 13.ágúst 2016

Póstur eftir Böðvar »

Enn eitt frábært Stórskalamót í Mosó, takk fyrir það Einar Páll Einarsson og meistari Birgir Sigurðsson innilega til hamingju með þetta fallega flugmódel. Hjartað í gamla hljóðmeistaranum tók nokkur aukaslög að heyra hvernig hljóðið magnaðist upp þegar Jón V. Pétursson setti mótorana í gang, einn af öðrum og þvílíkt eyrnakonfekt.




Ein stutt mynd í lokin frá Stórskalamótinu hans EPE sem ég kalla LITLI OG STÓRI




Kv. Böðvar
Passamynd
Árni H
Póstar: 1585
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Stórskalaflugkoma EPE - 13.ágúst 2016

Póstur eftir Árni H »

Það er nú eiginlega að bera í bakkafullan lækinn að bæta inn á þennan þráð, sérstaklega á eftir svona flottum myndum en ég tók slatta af mynd"böndum" sem ég klippti niður í eftirfarandi ræmu:

Passamynd
Flugvelapabbi
Póstar: 589
Skráður: 2. Des. 2008 16:53:06

Re: Stórskalaflugkoma EPE - 13.ágúst 2016

Póstur eftir Flugvelapabbi »

Kæru felagar
eg vil þakka ollum sem komu og toku þatt i Storskala flugkomunni 13. agust, einnig ber ad þakka ahorfendum
og serstaklega honum Birgi Sig fyrir þessa flottu flugvel sem hann hefur gert og Steve Holland fyrir flugin sem
voru flott utfærd.
En og aftur takk fyrir komuna
kv
Einar Pall
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Stórskalaflugkoma EPE - 13.ágúst 2016

Póstur eftir Sverrir »

Það var nóg um að vera á stórskalaflugkomunni eins og sjá mátti í 2016 annálnum og auðvitað þurfti að klippa efnið til svo það passaði þar inn.

Hér er því komið vídeóið frá stórskalaflugkomunni í allri sinni dýrð!



Hins vegar er dýrðin svo mikil að til þess að hún njóti sín til fulls þá er hér nokkur af stærri atriðunum í öllum sínu veldi.


* Óklippt er auðvitað ekki réttnefni, directors edition er kannski réttara.
Icelandic Volcano Yeti
Svara