Sælir
Mér þykir þessi þráður þarfaþing hið mesta og ég get vottað það að þessi Tigermouth er snilldarsmíði, eins og reyndar flest annað sem Guðmundur Geirmundsson tekur sér fyrir hendur
Mig langar til að koma að smá fróðleik varðandi módelið sem ekki fást myndir af, :-Þ þeas hinn marg um talaða Piper cub Guðjóns og félaga, að smíðafélagi Guðjóns er einmitt aðal eigandi TF-DÝR sem er Piper Cub "full scale" og á heima á Selfossflugvelli. Sá heitir Jón Guðbrandsson. Þannig að það má segja að Guðjón sé með sér bæði eldri og reyndari mann í módelsmíðinni því Jón einmitt gerði TF DÝR upp, nánast úr engu. Hann er algjört Piper Cub séní og er virkilega gaman að heyra hann romsa úr sér hinum ýmsasta fróðleik um þessar vélar...
En og aftur, Guðjón við viljum myndir!
Mbk
Tóti T
Smástund