Góðan daginn,
Er með gamla Futaba T6EXA og langar að kaupa mér nýja. Hef verið að skoða frá spekrum í USA og er þetta
svo breytt og flókið. Eru menn að nota þessar spektrum fjarstýringar ? Hvað mælið þið með ?
Kveðja
Pétur
Spektrum
Re: Spektrum
Það fer svona eftir því hvað þú ætlar að gera við hana.
Það eru þó nokkrar Spektrum í umferð hérna og Spektrum, JR og Futaba eru algengustu merkin hér heima. DX8 er t.d. fín fjarstýringu á fínu verði.

Icelandic Volcano Yeti
Re: Spektrum
Sæll Sverrir,
Takk fyrir svarið . Er bara nota Easy star og Easy glider og þarf bara 6 channels. Gamla var að nota 35,120 MHz.
Spektrum notar 2,6 ghz DSMX®/DSM2® Eru allar þessar nýjustu að notast við þetta DSMX®/DSM2® tækni þ.e.a.s Futaba, JR og Spektrum?
Kv

Þá kemstu af með DX6.
Það er nánast ómögulegt að finna fjarstýringar í dag á öðru en 2.4 ghz og þá er oftast um mjög sérhæfðar græjur að ræða. Eftir að framleiðendur færðu sig yfir í 2.4 ghz þá er ekki hægt að nota móttakara frá öðrum framleiðendum nema í þeim tilfellum sem JR/Spektrum voru í samvinnu með DSM/X staðalinn. Þeir hættu því samstarfi í kringum 2010. Flestir framleiðendur eru að nota spread spectrum frequency hopping í dag til að koma merkinu á milli.
Svo hefur verið hægt að kaupa móttakara frá þriðja aðila sem ganga með Spektrum og Futaba fjarstýringum, Orange og Lemon eru dæmi um tvö vörumerki.

Sæll,
Takk fyrir þessa upplýsingar. Ætla skoða þetta betur og taka svo ákvörðun

Jón V selur stýringar á samkeppnisfæru verði.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði