Svona merkisatburður má ekki falla í gleymsku. Ég skannaði þær myndir sem ég fann í morgun. Þetta eru slides myndir, líklega Kodachrome 64. Þær eru allar frá fyrra sumrinu, þ.e. 1964. Hef ekki enn fundið myndir frá 1965. Sjálfsagt á ég eftir að bæta við nokkrum minningarbrotum, en ýmislegt gerðist þarna auðvitað.
Myndirnar eru á heimilistölvu. Tenging út er aðeins 256 kb/s, þannig að þær geta verið lengi að birtast, sérstaklega ef margir eru að skoða samtímis.
Þarna eru greinilega mjög færir hátækni-dellukallar. Væri ef til vill áhugavert að kanna hvort hagkvæmt sé fyrir okkur og þá að íhuga sameiningu félaganna? Til dæmis koma upp í hugann tryggingamál, fyrir utan allt hitt sem gaman er að.
Ágúst þessi síða þín http://www.agust.net/dragon/ er frábært heimild. Ég fæddur 1979 hafði ekki hugmynd um þennan atburð eins og ég held að eigi við um fleiri.
Ágúst, tókst þú þessar myndir. Ég segi nú eins og Kip. Hafði ekki hugmynd um þetta og ég held að flestir sem ég þekki hafi ekki vitað um þetta. Þetta er stórmerkilegt. Það er ekki furða að það safnist saman svona dellukallar í módelklúbbana. Ég vissi ekki að Ágúst væri "Rocket Scientist"
kv
MK
Ég hef bætt við myndum sem Dr. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur (bróðir Stefáns flugmanns) sendi mér. Einnig breytt texta eftir ábendingar frá Þorsteini.
Mjög skemmtileg síða hjá þér Ágúst, með lestri minningarbrota og við að skoða myndirnar dreymir maður sig aftur í þessa fornöld sem var áður en maður kom í heiminn sem virðist svo ekkert svo forn.