Kambar - 27.maí 2018 - Hangmót

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Kambar - 27.maí 2018 - Hangmót

Póstur eftir Sverrir »

Það var flogið í dag! Við náðum að halda mót og Erlingur varð í 1. og 3. sæti en ég og Guðjón deildum 2. sæti. Hér sést mynd frá verðlaunaathöfninni.
Mynd

En að öllu gamni slepptu þá fékk Erlingur afhenta verðlaunapeningana fyrir mót síðasta árs sem útdeilt var á aðalfundi Þyts í mars sl. en þangað hafði hann ekki átt heimangengt svo Guðjón tók að sér að koma þeim til hans.

En við vorum komnir í Kambana rétt fyrir kl. 14 í dag og þá var útsýnið svona, svo það var ekkert annað að gera en að hoppa upp í einn bíl og leysa alheimsvandamálin og lífsgátunni allt í einu.

Mynd

Rétt fyrir 15 hafði þetta lítið skánað en þó var farið að draga úr rigningunni og hætti hún skömmu síðar!
Mynd

Um hálf fjögur renndi Maggi svo í hlað eftir mikin þvæling upp og niður Kambana, innan sem utan vegar, og fær hann þolinmæðisverðlaun ársins fyrir það.

Mynd

Leynivopnið, var á sínum stað, sjáið þið það?
Mynd

Það er sko með svona STÓÓÓÓRAN spaða!
Mynd

Maggi kom færandi hendi með veitingar handa mannskapnum, á þessum tímapunkti var hann ekki alveg viss hvort við værum snarruglaðir eða bjartsýnustu menn landsins...
Mynd

Gætum hafa fundið stangirnar þínar Stebbi!
Mynd

Rétt fyrir hálf fimm fór aðeins að rofa til.
Mynd

Maggi skellti þá Bixler í loftið og reyndi að feykja í burtu síðustu leifunum af skýjunum sem voru að hangsa í kringum okkur.
Mynd

Korter í fimm var svo ljóst að flugveðrið væri alveg að detta inn og við höfðum veðjað á réttan hest eftir mikla yfirlegu yfir veðurkortum síðustu daga, svo þá var ekkert að gera annað en að henda hliðunum upp.
Mynd

Maggi er vanur að koma böndum á menn, hlið voru ekkert vandamál!
Mynd

Betur sjá augu en auga.
Mynd

Svo þarf víst tvö hlið!
Mynd

Ekki mátti gleyma bjöllukerfinu.
Mynd

Maggi að taka út keppnisbrautina.
Mynd

Guðjón nýlentur og Erlingur að gera sig kláran í loftið.
Mynd

En já, þar sem við vorum bara 4 á svæðinu þá náðist nú ekki að taka mikið af sjálfu fluginu annað en það sem hausinn á Magga festi á kubb. Engu að síður náðum við að manna hliðin og tímatökuna þannig að við hófum leika rétt rúmlega fimm. Rétt fyrir sex fór svo að þykkna upp og rigningin mætti aftur á svæðið svo þá var sjálfhætt en við höfðum náð að fljúga þrjár umferðir og vorum nokkuð sáttir með það.

Þá náðist líka markmiðið sem lagt var af stað með á aðalfundi Þyts að hefja æfingar í mars/apríl og halda svo keppni í maí þannig að við gætum ekki verið sáttari. Því miður lítur ekki út fyrir að mikið verði um hang næstu vikurnar eins og staðan er í dag þannig að við krossum bara putta og vonum að við komumst aftur upp í brekku fljótlega að æfa okkur fyrir komandi baráttu.

Svona skiptust stigin á milli þátttakenda:

1. Sverrir 1000 1000 1000 3000
2. Guðjón 980 962 970 2912
3. Erlingur 835 770 652 2257

Mynd

Þökkum Magga kærlega fyrir alla hjálpina í dag, við hefðum ekki getað þetta án hans! :)

Maggi æfði sig í hangi eftir skoðunarferð um svæðið.
Mynd

Það vantaði svo ekki vindinn í dag, eftir hádegi fóru hviðurnar yfir 25 m/s og meðalvindur yfir 20 m/s. Það var þó orðið aðeins rólegra þegar við komumst loksins í loftið.
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
arni
Póstar: 276
Skráður: 3. Okt. 2012 18:55:55

Re: Kambar - 27.maí 2018 - Hangmót

Póstur eftir arni »

Flott hjá ykkur.
Kveðja Árni.F.
Passamynd
gudjonh
Póstar: 847
Skráður: 27. Feb. 2008 09:07:06

Re: Kambar - 27.maí 2018 - Hangmót

Póstur eftir gudjonh »

Já, það er littlu við þatta að bæta, nema kanski þegar Maggi sagði: "Þið eruð ruglaðir", en þá sagði ég að hannn vært trúlega enþá ruglaðri, að nenna að bíða með okkur í rigningu og þoku eftir einhverju "gati" sem mátti finna í spánni með góðum vilja. Held að "gatið" hafi verið aðeins styttran en "lofað" var.
Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd
Guðjón
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Kambar - 27.maí 2018 - Hangmót

Póstur eftir Sverrir »

Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
maggikri
Póstar: 5603
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Kambar - 27.maí 2018 - Hangmót

Póstur eftir maggikri »

Sverrir talaði við mig og plataði mig í Kambana sunnudaginn 27.05.2018. Ég setti saman Phoenix 1600 sem ég átti og gerði Stargazer 2 klára og einnig Bixler 2 til vara og leynivopn sem var það ásamt mér sjálfum.

Hann sagði að það ætti að vera hangmót Já ég sagði: eruð þið ruglaðir!.

Veðrið það er klikkað. Lagði af stað úr Keflavík um eitt leytið. Þá var skýfall þar og ekki tók betra við í kömbunum ég sá varla sjálfan mig í bílnum. Ég var ekki viss um hvar þessi hangstaður væri.

Sverrir lóðsaði mig í gegnum síma. Ég fann ekki afleggjarann og fór í Hveragerði og fékk mér pulsu og keypti Prinspóló handa þeim sem ætluðu að taka þátt í mótinu.

Hringdi aftur í Sverri og fékk nánari leiðbeiningar en fór þá útaf í miðjum Kömbunum og hélt að það væri slóðinn. En þá var ég komin út í kant sem var ca tveimur metrum fyrir neðan veg og bílar farnir að hæga á sér og héldu að ég væri farinn útaf. Skyggni var næstum því ekkert. Ég bað Sverri að koma á móti mér sem hann gerði. Ég sá aldrei Sverri og fór þá aftur til Hveragerðis og gerði aðra tilraun. Á leiðinni til baka sá ég Sverrir og Có. Þá var ég hinum megin við akbrautina og skyggni ekkert og átti eftir að krossa Hellisheiðarveginn.

En þetta gekk allt vel og ég tók svo flug á Bixler í skyggni engu! en það gekk bara ágætlega. Ég ætlaði síðan að taka fleiri flug á Bixlerinn en hann fór í jörðina í flugtaki. Ég fann það út þegar ég kom heim að hann var svo mikið niðurtrimmaður vegna rafhlöðu sem er einungis 1300mah og miklu léttari en 2200 mah ríkisrafhlaðan. Var bara búinn að gleyma því.

Jæja en mót var haldið og fékk ég hálfgert "flashback "frá HM í Danmörku 2016. Gaman að sjá svona flogið aftur. Sverrir, Guðjón H, og Erlingur flugu þessar þrjár umferðir bara mjög vel og gaman að sjá þetta.

Þetta var ótrúleg þrautseigja hjá þeim að bíða af sér rigninguna og þokuna. Þetta er "Top Shop" eins og Gunni Mx myndi segja.

Takk fyrir daginn drengir!

Mynd Mynd Mynd Mynd
Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd
Passamynd
Árni H
Póstar: 1585
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Kambar - 27.maí 2018 - Hangmót

Póstur eftir Árni H »

Þið eruð magnaðir!
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Kambar - 27.maí 2018 - Hangmót

Póstur eftir Sverrir »

Smá hreyfimyndir af fluginu.

Icelandic Volcano Yeti
Svara