Jæja, árið farið að styttast í annan endann og nóvember að skella á, það þýðir bara eitt, Flugmódelárið 2018 er að fara í vinnslu. Að venju verður blaðið stútfullt af myndum og frásögnum af því helsta sem gerðist á árinu.
Sem fyrr er verðið aðeins einn Kjarval eða 2.000 kr.
Á meðal efnis:
- Ritstjóraraus
- Hvert er árið?
- Gullkistan
- Flugkoma FMFA
- Stór-, smá- og stríðsfuglaflugkomur
- Heimsmeistaramótið í F3F
Þeir sem áhuga hafa á að næla sér í eintak eru vinsamlegast beðnir um að senda mér línu,
sverrirg hjá gmail.com, hringja í mig, 863 3479,
eftir kl. 17 eða með því að svara þessum pósti.
Þangað til tímaritið kemur út geta menn stytt sér stundir við lestur
2015,
2016 og
2017 eintakanna!