Ég og Guðjón skelltum okkur upp að Kleifarvatni um miðjan dag þar sem þokkalega blés að sunnan og nokkurn veginn á Stefánshöfða. Vindurinn var rysjóttur en þó bara alveg þokkalegur, hiti um 5°C og í kringum 5-6 m/s. Aðflugið var í leiðinlegri kantinum og fengum við smá rispur á vélarnar þegar þær hittu móður jörð aftur eftir stuttan aðskilnað.
Stefánshöfði - 9.apríl 2019
Re: Stefánshöfði - 9.apríl 2019
Icelandic Volcano Yeti
Re: Stefánshöfði - 9.apríl 2019
Búinn að laga "rispuna" á Tragi.
Guðjón
Guðjón
Re: Stefánshöfði - 9.apríl 2019
Fékk póst frá meistara Sverri kl 15:20 um Hangflug við Kleifarvatn kl. 15.00. Var kominn kl. 16:05 enda ekki langt að fara frá Hafnarfirði, en þá voru allir farnir nema Fýlinn. Góður dagur að viðra dótið sitt aðeins í góðum ASA hangvindi. Takk samt fyrir póstinn. kv. Böðvar
Re: Stefánshöfði - 9.apríl 2019
Jæja, þeir skiluðu skeytinu þó til þín þó það væri næstum 2 klukkutímum eftir að ég sendi það, maður má kannski bara þakka fyrir að þeir rukkuðu þig ekki í leiðinni eins og Pósturinn er að stefna að!
Þú fékkst alla vega fína viðringu og hangflug út úr þessu... og einstaklega góðan félagsskap, kannski var þetta sá sami og flaug með Guðjóni og mér!
Þú fékkst alla vega fína viðringu og hangflug út úr þessu... og einstaklega góðan félagsskap, kannski var þetta sá sami og flaug með Guðjóni og mér!
Icelandic Volcano Yeti
Re: Stefánshöfði - 9.apríl 2019
Ég var einmitt núna tilbúinn með tvær Tragi svifflugur sem ég hef verið að vinna við og lagfæra í vetur, en þarf að æfa mig og fínstilla, takk fyrir góðan hug Sverrir. Þetta var frábær dagur á Stefánshöfða.
Re: Stefánshöfði - 9.apríl 2019
Við náum þessu bara næst, sendi hugskeyti þá, það skilar sér örugglega betur!
Icelandic Volcano Yeti