Ziroli P-47 Thunderbolt
Re: Ziroli P-47 Thunderbolt
Já, erlendir hlutir eru að verða ansi dýrir... :/
Icelandic Volcano Yeti
Re: Ziroli P-47 Thunderbolt
Jæja ég var örlítið nær ráðlögðum dagskammti af litarefninu núna.
Icelandic Volcano Yeti
Re: Ziroli P-47 Thunderbolt
Síðustu kvöld hafa farið í vængklæðningu og tókst mér að klára hana í gærkvöldi. Eins og glöggir menn hafa kannski séð þá var smá bil þar sem vængsamskeytin voru, það gengur auðvitað ekki svo þá var komið að smá föndri til að lagfæra það.
Ég byrjaði á að setja brúnt límband á vængmiðjuna, það kemur í veg fyrir að ég endi með heilan væng á morgun.
Svo var smá sparsl sett á vængendann, kannski helst til mikið sem sést hér, en það sleppur.
Því næst er vængendinn settur á sinn stað og sparslinu leyft að þrýstast út.
Svo fjarlægði ég mest af umfram sparslinu. Á morgun ætti ég svo að vera kominn með ljómandi fín og snyrtileg samskeyti.
Fyrir áhugasama þá var P38 í aðalhlutverki á myndunum hér að ofan.

Rauðu hringirnir sýna hvar sparslið hafði gripið örlítið í límbandið. Ætli maður haldi sig ekki við Tesa í framtíðinni.
Hér sést hvernig sparslið hefur dreift úr sér og fyrir utan að gefa fínni samskeyti þá er vængendinn einnig mikið massívari þegar hann hefur verið festur á sinn stað.
Sko til, næstum því ósýnileg samskeyti, jæja þau verða það nánast þegar ég hef pússað þau til og fyllt upp í gatið í kringum festingarflipann.
Hér sést hvernig sparslið hefur dreift úr sér og fyrir utan að gefa fínni samskeyti þá er vængendinn einnig mikið massívari þegar hann hefur verið festur á sinn stað.
Sko til, næstum því ósýnileg samskeyti, jæja þau verða það nánast þegar ég hef pússað þau til og fyllt upp í gatið í kringum festingarflipann.
Icelandic Volcano Yeti
Re: Ziroli P-47 Thunderbolt
Jæja, þá var komið að stóru stundinni, vængurinn var mátaður við skrokkinn í kvöld. Ég var bara nokkuð sáttur við niðurstöðuna.
Einhvers staðar þarf vængurinn að vera festur.
Einhvers staðar þarf vængurinn að vera festur.
Icelandic Volcano Yeti
Re: Ziroli P-47 Thunderbolt
Já það er erfitt að trúa því að það séu komin tvö ár síðan smíðin hófst, fínn tími til að sameina væng og skrokk með bor og skrúfum.
Já það er farin að koma smá mynd á vélina.
Komst að því þegar ég fór í Byko um daginn að „threaded inserts“ eru kallaðar ramparær, alla veganna í Byko.
Þá var komið að því að tilsníða magapönnuna, ég bjó til eitt W2 rif til að fá grófa hugmynd um hvað ég þyrfti að skera út
Tada...
...næstum því, ég þurfti að bæta við smá efni hinu megin.
Gunni og Guðni voru líka að smíða, alltaf gott að hafa fagmenn við höndina...
Já það er farin að koma smá mynd á vélina.
Komst að því þegar ég fór í Byko um daginn að „threaded inserts“ eru kallaðar ramparær, alla veganna í Byko.
Þá var komið að því að tilsníða magapönnuna, ég bjó til eitt W2 rif til að fá grófa hugmynd um hvað ég þyrfti að skera út
Tada...
...næstum því, ég þurfti að bæta við smá efni hinu megin.
Gunni og Guðni voru líka að smíða, alltaf gott að hafa fagmenn við höndina...
Icelandic Volcano Yeti
Re: Ziroli P-47 Thunderbolt
Já þá var komið að því að „skemma“ vænginn og skera út fyrir hjólastellinu. Þrumufleygurinn hafði þann skemmtilega eiginlega að draga hjólalegginn saman þegar hann fór upp í vænginn svo hann styttist um ca. 25 sentimetra, þar sem ég lagði nú ekki út í það að fá mér svoleiðis hjólastell þá verða legghlífarnar ekki alveg eins og á frummyndinni.
Svona lítur þetta út á stóru systur, þetta er ekki nákvæmlega rétt hlutfall miðað við mína vél heldur var þetta haft til hliðsjónar þegar merkt var fyrir legghlífunum á trefjasamlokuna. Á neðri myndinni sést líka hvernig ég skar út og kom hjólastellinu niður í vænginn áður en lengra var haldið.
Hér er trefjasamlokan á sínum stað og ég er byrjaður að teikna legghlífarnar á hana.
Eftir smá möndl þá var ég búinn að skera legghlífina út, hún verður í einu lagi, alla veganna fyrst um sinn. Því næst er hún fest niður og skorið í kringum hana til að hún falli slétt að.
Hérna sjást merkingarnar áður en ég skar út fyrir legghlífinni.
Eins og flís við rass! Ég geng svo betur frá svæðinu í kringum festingarnar áður en vélin fer á sprautustigið. Svo er bara að endurtaka leikinn.

Jæja, þá eru báðar hjólalúgurnar tilsniðnar.
Og annar stór áfangi, hér sést Þrumufleygurinn standa á eigin fótum í fyrsta skipti.
Og annar stór áfangi, hér sést Þrumufleygurinn standa á eigin fótum í fyrsta skipti.
Icelandic Volcano Yeti
Re: Ziroli P-47 Thunderbolt
Til hamingju með áfangann. Þetta er flott.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði