Takk fyrir viðtökurnar.
Já, ég lít örugglega við hjá ykkur norðanmönnum í vetur. Jú, við Árni þekkjumst frá fornu fari, en núna er hann meira lærifaðir en vinur...! :rolleyes:
Annars er það að frétta að ég er búinn að koma Corsair í loftið (festur með þráðum) og nú er Mustang á borðstofuborðinu. Alveg magnað hvað maður hefur gott lag á að gera konuna ánægða. Þetta lítur svínslega vel út, en eini ljóðurinn er sá að það var leiðinda mar á öðrum vængnum. Hún lítur aðeins stríðshrjáð út fyrir vikið.
Corsair F4U
Re: Corsair F4U
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Re: Corsair F4U
Corsair er að verða flugklár. Hún er kominn með þennan fína Thunder Tiger mótor frá Magga formanni og á andartaki breyttist hún í gjafvaxta dömu... með klær. Ég er að bíða eftir græjum frá Þresti og þá verður Corsair klár.
Eitt sem ég hef aldrei skilið... af hverju í dauðanum þurfa orginal möfflerarnir að líta út eins og Zeppelin loftfarið? Ég ætlaði að setja mótorinn á með möffler og það varð svona:
Þetta býður manni ekki nokkurri vél með sjálfsvirðingu uppá! Minni muffler á leiðinni! Þá kemur þetta til með að líta svona út. Ég er búinn að gera gat fyrir glóðarpungnum og skar út opnanlegan hlera fyrir stilliskrúfunni með Dremel. Ég á eftir að finna svipaðan lit til að laga sárin. Ég límdi "hlemminn" aftur á með CA-lömum og notaði svoleiðis sem "lás" líka. Svínvirkar í kyrrstöðu... á eftir að sjá hvað setur!
Eitt sem ég hef aldrei skilið... af hverju í dauðanum þurfa orginal möfflerarnir að líta út eins og Zeppelin loftfarið? Ég ætlaði að setja mótorinn á með möffler og það varð svona:
Þetta býður manni ekki nokkurri vél með sjálfsvirðingu uppá! Minni muffler á leiðinni! Þá kemur þetta til með að líta svona út. Ég er búinn að gera gat fyrir glóðarpungnum og skar út opnanlegan hlera fyrir stilliskrúfunni með Dremel. Ég á eftir að finna svipaðan lit til að laga sárin. Ég límdi "hlemminn" aftur á með CA-lömum og notaði svoleiðis sem "lás" líka. Svínvirkar í kyrrstöðu... á eftir að sjá hvað setur!
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Re: Corsair F4U
[quote=Sverrir]Smá silfurlit í sárið?[/quote]
Kannski það, já. Ég er nú þegar kominn með silfurlit í hárið!
Kannski það, já. Ég er nú þegar kominn með silfurlit í hárið!
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Re: Corsair F4U
Corsair er flugklár!
Ég þarf reyndar að finna svipaðan lit til að mála sárin. Ég setti þennan flotta F1 áfyllingarstút frá flugmódelvöruverslun smáfuglanna og svo fór pitts muffler á og voila: