Eins og sumir vita þá er ég með dellu fyrir B24 Liberator. Er alltaf að finna meira og meira um þá.
Í dag fann ég svolítið skrítið. Hér kemur mynd af plastmódeli af raunverulegri vél sem var notuð í stríðinu stóra:
og spurninginn er: hvers vegna í ósköpunum var þessi vél máluð í svona eh...skrípalitum?
Hvert var hlutverk hennar?
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong" H.L. Mencken
Svona til að taka þátt í gátunni þá giska ég á að hlutverk hennar hafi verði eldsneytis flutningur. Mér dettur þetta í hug vegna stútana sem eru þarna framalega á tríninu.
[quote=Agust]Hefur ekki flugvélin bara verið "ground-uð" eins og sagt er. Liturinn er nefnilega alveg eins og á jarðbindivír.[/quote] Hann hefur kannski teipað hana saman með gamla góða gulgræna teipinu og svo klórar Dr. Med. Björn von Cowling sér í hausnum yfir þessu!
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Flugvélar sem voru notaðar til að draga æfingaskotmörk voru oft málaðar mjög gassalega og ég giska á að það hafi verið hlutverk þessarar vélar: að draga skotmark sem flugmenn æfðu sig í að skjóta á.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
[quote=Gaui]Flugvélar sem voru notaðar til að draga æfingaskotmörk voru oft málaðar mjög gassalega og ég giska á að það hafi verið hlutverk þessarar vélar: að draga skotmark sem flugmenn æfðu sig í að skjóta á.[/quote]
Ekki þessar
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong" H.L. Mencken
1. Voru þetta merkingar svo að vinir og samherjar skytu þær ekki niður einhversstaðar?
2. Varla hefur þessi vél verið einver guide fyrir aðrar? niii
3. Fannst þeim þetta ekki bara helvíti flott en þjónaði engum tilgangi? neinei
4. Voru þær notaðar sem "færanleg merking" á svæðum
5. ég er uppiskroppa með ógáfulegar uppástungur
6. google er ekkert að gagnst mér en ég fann flottar capitureaðar b24 hér http://capturedplanes.tripod.com/b-24.htm