Dálítið óhugguleg myndin sem kemur upp í hugann af nýliðanum að busla í djúpu lauginni og einhver gamall skröggur að ýta oná bakið á honum :/
Fyrirgefðu Ágúst - ég veit þú meintir þetta ekki svona, ég bara varð að snúa útúr.
Ég ætla að gera meira og bjóða fram aðstoð mína ef einhver af nýliðunum vill fá annað sjónarhorn á hlutina. Ég var einu sinni formaður Þyts og er núna í stjórn hér fyrir Norðan. Við höfum einmitt verið að ræða að það þyrfti að vera meira samstarf á milli klúbbanna um ýmislegt, sérstaklega hluti sem ættu alls ekki að vera mismunandi eftir landshlutum. Eða eins og Saddam sagði: Verum í bandi strákar!
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Undanfarnar vikur hefur meðal félagsmanna verið leitað að mönnum sem tilbúnir eru að taka að sér stjónrnarstörf. Nú eru góðar líkur á að það hafi borið árangur.
Í framhaldi af þessu verður boðað til aðalfundar í marsmánuði, nánari fréttir um stund og stað fljótlega.
Nú er mars einn lengsti mánuður ársins. Veit einhver hvenær í mars áætlað er að halda aðalfundinn?