WAF Super Cub

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Sverrir »

Takk :D
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Jæja....

þá er komið að því að segja frá því sem er verulega frábrugðið við mína smíði miðað við Gauja SúperKöbb.

Ég valdi sem sé að treysta fagurgalanum í Toni Clark og pantaði mér Zenoah 45cc mótor með öllum græjunum sem hann mælir með fyrir þessa vél. Reyndar er hægt að nota hvaða Zenoah sem er frá 28cc upp í 62cc. Ég vil gjarnan hafa dráttarkraft en sá að 62cc væri allt of mikið. Það kemur að gagni ef maður er að draga á loft risasvifflugur (þá meina ég Risa-) og maðurverður að halda vel aftur af eldsneytisgjöfinni ef vélin á ekki að þeytast um loftið eins og rakki eftir lóðatík og eyðileggja alveg "skala-fílínginn".

Nújæja. Það sem meira er, Toni og félagar hafa hannað mótorfestingu sem byggir á mjúkum gúmmípúðum og tveimur dempurum.
Nú er gúmmípúðafesting yfirleitt af hinu illa þar sem það bara gerir allan hristing verri en Toni et al. hafa þaulprófað þetta og verkfræðistúdentar gerðu lokaverkefni sitt á þessu og fundu út að púðarnir verða að vera ansi mjúkir til þess að þetta hafi tilætluð góð áhrif.

Útkoman er "Hydro-mount" sístemið svokallaða.
Mynd
Ennfremur er með í þessu sérsmíðaður stál-hljókútur sem gengur aftur úr og fyllir það pláss sem við höfum vanist að láta eldsneytistankinn fylla, aftan við eldvegginn.
Summan af öllu þessu á að vera einstaklega hljóðlát og skemmtileg vél.

Nú... þetta byrjar allt með eldveggnum eins og dæmin sanna (sjá Þrumuboltasmíðina hans Sverris)
Það fylgir teikning af útskurðinum og hérna er ég að yfirfæra hana á eldveggsplötuna (kubb númer 21 í kittinu)
Mynd

eins og sést þá gera Toni et al. ráð fyrir að maður sagi gatið út úr plötunni en ég valdi að skilja eftir litla ræmu á kantinum. Svo boraði ég öll göt og epoxíaði gaddararærnar fyrir mótorfestingarnar. Það kom í ljós að þær voru lengri en þykktin á eldveggsplötunni svo til þess að draga þær vel í, þurfti ég að finna þykka skífu með stóru gati og leggja á milli. Seinna slípaði ég niður það sem út úr stóð.
Mynd
Hér sést líka hvernig ég skildi eftir ræmu á kantinum en hún verður so ekki fyrri þegar allt kemur til alls.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Næstfremsta skilrúmið, númer 22, þarf að saga neðanaf til þess að búa til útloftunarop niður úr hljóðkútshóflinu.
Mynd
Til þess hallaði ég landinu á gömlu Dremel tifsöginni. Það er auðvelt að nota gráðuboga til þess að sikta þetta út.
Mynd
Mynd

Ég valdi líka að saga út op í þetta aftara skilrúm (22) til að spara þyngd (ca 65 gr. reyndist það vera) enda alinn upp við að smíða létt. Maður lokar svo þessu opi með balsaplötu enda á heita loftið að fara niður úr hólfinu en ekki inn í flugstjórnarklefann. Eins og Gaui hefur lýst þá fer Toni mörgum orðum um ýmis svona atriði í leiðarvísinum.

Nú... að líma eldvegginn í var svo sem ekki í frásögur færandi nema það á að vera 2,5° hægriflái á honum fyrir 45cc (þennan) og 62cc mótorinn og það er eins gott að mæla og pæla áður en epoxíið harðnar svo maður fái þetta nú rétt. Ég var alveg með hjartað í buxunum því þetta virðist vera svo mikill flái en það varð rétt.

Í millitíðinni er ég búinn að líma og smíða hitt og þetta sem Gaui lýsir vel í sínum þræði.

I kvöld kom svo að því að prófa að festa nefþyngdina á. Kjarkinn til þess sótti ég í rúma hálfflösku af ágætu Sikileysku hvítvíni sem ég opnaði til að mýkja frúna sem hafði átt óvenju erfiða vakt í fyrrinótt. Þegar til kom hafði hún ekki lyst á nema einu glasi svo minn helmingur varð heldur stór.

Grunnurinn í HydroMountinu er öflug álplata sem þeir kalla köngurlóna og hér sést hún komin á gúmmípúðana og hljóðkútnum er tillt á sinn stað
Mynd

Þið spyrjið kannski af hverju þurti kjark til þessa verks en hér sést ástæðan:

Mynd

Ég hafði uppgötvað sama kvöld og ég fékk græjurnar að mótorinn passaði ekki á þetta sístem.

Aftan úr þessum fína Zenoah gekk stærðar öxulgöndull sem ætlaður er til að festa gormastartara á. Þessi göndull rakst rækilega í hljóðkútinn þegar maður ætlaði að setja sístemið saman.
Mynd
Minn maður fylltist vægri vandlætingu og spurði Toni og co. kurteislega (meil-leiðis) hvort hann hefði ekki afgreitt vitlausa útgáfu af mótornum en þeir félagar svöruðu um hæl að þeir hefðu bara gleymt að segja frá því að þennan göndul ætti að saga af!!! Með svarinu fylgdi úrkippa úr nýrri útgáfu af leiðarvísinum sem ekki var kominn í gagnið enn.

Hægara sagt en gert. "Nedstrygeren" fékk jafnvel nýtt blað en það var alltof sljótt verkfæri svo Dremillinn góði var tekinn fram og fíber-skurðarblað af fínustu gerð smaug í gegnum þetta eins og til var ætlast.
Mynd
Eins gott að líma málaralímband yfir öll göt á mótornum til að forðast svarf inn í fíneríið.

Svo var hægt að fara að skrúfa herlegheitin almennilega saman en það reyndist ekki svo blátt áfram.

Þetta er úthugsað og ágætlega hannað sístem og boltarnir vel valdir svo hægt sé að koma við verkfærum en það er eins gott að leika sér með þetta og prófa og finna út í hvaða röð skrúfur og annað á að koma í svo púsluspilið gangi upp. Það er nebbnlega ekki hægt að bara skrúfa kútinn eða mótorinn á fyrst og svo hitt þvi þá lendir maður í klemmu eins og td. hér
Mynd
Á endanum tók ég innsogsrörið með krabatornum af til þess að komast að og þá gekk þetta.

Ég gleymdi reyndar að geta þess að bogna innsogsgrein þarf maður að panta sér og setja á milli blokkarinnar og karbatorsins. Það er smá föndur og möndl að finna réttu skrúfurnar og passa að pakkningarnar snúi rétt þegar maður setur þetta saman með einangrunarskífu milli greinarinnar og karbatorsins (til að hann hitni ekki um of)
Mynd
Hér sést þessi útbúnaður vel. Einangrunarskífan er ljósbrún. Í gegnum hana er lítið hliðargat sem þarf að vera réttum megin og tilsvarandi gat í pakkningunum sem þarf að standast á. Einnig þarf að skipta um loftblæðislöngu (rétt nafn?) en hún fylgir með.
Einnig sést á þessari mynd hvernig kælibörðin á blokkinni rekast í köngurlóna. Þess vegna þarf að klippa af þeim lítilsháttar en það er frekar einfalt mál. Hægt að nota góða klíputöng til að kroppa af börðunum því þau eru úr stökkum málmi sem nánast molnar undan tönginni.
Kælibörðin eru misstór og gefa frá sér ágæta tóna við áslátt. Meira að segja hægt að spila lagstúf með þeim. Þetta segir Toni að sé enn ein uppspretta hljóðs frá svona mótor og mælir með því að maður setji búta af eldsneytisslöngu á milli þeirra til að dempa titring í þeim og þar með hljóðið.

Hér eru svo herlegheitin komin saman og á sinn stað:
Mynd
Mynd
Svarta snúran er úr "Hall"-skynjaranum sem nemur snúning mótorsins þeas hvenær hann snýr í topp og sendir boð til rafeindakveikjunnar sem þessi útgáfa af 45cc mótornum er útbúin með. Þetta á að vera mun betri kveikja en gamla magnetan.

Þá kemur að einu litlu vandamáli sem ég þarf að ónáða þá Toni og félaga með.

Hraðagangsnálin er á þessum krabator er útbúin með stærðar T-handfangi sem lendir í veg fyrir festinguna á öðrum demparanum og rekst líka í köngurlóna svo það þarf að skipta þessu eða breyta í stuttan arm með rauf fyrir skrúfjárn, skyldi ég halda.
Mynd
Verður fróðlegt að herya hvað þeir segja. (Ætli það sé ekki bara upp með Dremelinn aftur ? :D )

Nóg að sinni.

Sjáfur verð ég í Austurríki næstu viku svo þið eruð lausir við mig í bili.

Gleðileg áramót og innilegar þakkir fyrir árið sem er að verða búið
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Gaui
Póstar: 3773
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Gaui »

Glæsó Björn

Þetta er verulega flott hjá þér og verður gaman að bera saman hljóðið í kubbunum í sumar.

Ég er að lenda í svipuðum málum í Pits, en Þröstur var að láta mig fá bognu soggreinina í gær, svo ég get farið að fitta mótorinn og setja þrottluservóiöð á sinn stað. Gallinn við hædrómántinn hans Toni er að mótorinn getuir gengið til allt að sjö millimetra (segir hann sjálfur) svo að endinn á þrottlubarkanum verður að festast við köngulóna svo að víbringurinn endi ekki í mismunandi mótorhraða og látum. Ég er enn að reyna að uppgötva hvernig Clarkurinn ætlast til að maður leysi þetta :(
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Eftir því sem ég get séð þá fylgja með festingar fyrir þrottlubarkann og stykki til að festa á þrottluarminn og innsogið til að fá réttu stefnujrnar á þetta. Þessi stykki eru fræst úr þessu brúna þarna, hvað það nú heitir, Novatex eða eitthvað svoleiðis.

Er að skrifa Toni og spyrja hann út í þetta með T-arminn á aðalnálinni.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Þórir T
Póstar: 837
Skráður: 17. Ágú. 2004 23:25:55

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Þórir T »

Heitir þetta ekki "beikalit" eða einhvað álíka þetta "brúna þarna" :)

mbk
Tóti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3773
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Gaui »

Nei, "Bakelite" var massíft plastefni, en það eru trefjar í þessu brúna þarna
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Ég játa.... Ég hef gerst sekur um að lesa ekki majúalinn nógu vel. Við þriðja eða var það kannski fjórða ? yfirlestur fann ég það.

Eins og mig grunnti þá er það Dremellinn sem gildir. Í smá klausu er sagt að saga T-ið af og gera rauf í endann á nálarskaftinu. (Sjá umfjöllun um hraðagangsnálina hér fyrir framan)

Svona er að vera af "Ég les aldrei mánjúala" gerðinni. Þoli þá varla og þegar ég les slíka plögg þá er það á hundavaði venjulega.
Ég var nú ekki búinn að röfla í Toni og félögum um þetta svo ég varð mér bara til minnkunnar frammi fyrir ykkur.... ojæja

Nú er ég farinn í vetrarfríið. Heyrumst eftir viku.

Bestu áramótakveðjur.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Gaui
Póstar: 3773
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Gaui »

Ætli þetta sé venjulegur uppskurðargalli hjá Doktornum?Mynd
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Sverrir »

[quote=Gaui]Ætli þetta sé venjulegur uppskurðargalli hjá Doktornum?https://spjall.frettavefur.net/myndir/1167356968.jpg[/quote]
Allt nema gríman sýnist mér :D
Icelandic Volcano Yeti
Svara