Þorlákshöfn - 21.maí 2020 - Maímót F3F

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11420
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Þorlákshöfn - 21.maí 2020 - Maímót F3F

Póstur eftir Sverrir »

Hópurinn (Böðvar var farinn, við reynum að muna eftir því að taka myndina í upphafi dags næst!).
hopurinn.jpg
hopurinn.jpg (202.13 KiB) Skoðað 1693 sinnum
Veðurspáin varð sífellt hagstæðari eftir því sem á leið vikuna svo eftir að hafa tekið veðrið í morgun þá var ákveðið að hittast í Kömbunum kl.10. Þangað mættu 5 galvaskir flugmenn og 3 grjótharðir aðstoðarmenn að taka stöðuna. Vindurinn blés í kringum 30° á brekkuna en veðurmælar sýndu að vindur var beint á sandölduna við Þorlákshöfn svo ákveðið var að halda frekar þangað.

Við renndum í hlað á Þorlákshöfn rétt fyrir 11 og þá var ljóst að frábærar aðstæður voru fyrir hendi, stöðugur vindur utan af hafi beint á sandölduna og allt leit vel út. Það var því ekkert annað að gera í stöðunni en að drífa sig í að setja upp keppnisbrautina, í framhaldi af því fengu þeir sem vildu að taka prufuflug en svo um 12 leytið hófst sjálf keppnin.

Við ákváðum að prófa að breyta til og nota fyrirkomulag sem þekkist víðast hvar erlendis þegar um fámennari samkomur er að ræða en þá fljúga menn nokkrar umferðir í einu en eftir hverja umferð hægja menn á módelinu með bremsum og lækka flugið niður í ráshæð við brekkubrúnina, mætti kannski líkja því við rúllandi ræsingu úr akstursíþróttum. Við ákváðum að taka 3 umferðir í fyrsti atrennu, síðan var tekinn hádegismatur og að honum loknum voru flognar 3 umferðir til viðbótar. Skemmst er frá því að segja að þetta gafst ljómandi vel og náðist að fljúga 3 umferðir á tæpum klukkutíma.

Keppnin gekk ekki áfallalaust fyrir sig en aðstæður til lendingar voru erfiðar að þessu sinni og hlekktist 3 vélum á í lendingu, 1 fékk „flutter“ í hallastýrið og varð lendingin frekar hörð í framhaldi af því.

Rásröðin var sem hér segir:
  1. Sverrir
  2. Erlingur
  3. Böðvar
  4. Lúðvík
  5. Jón
Úrslit urðu sem hér segir, áhugasamir geta skoðað nánari greiningu á vef F3XVault:
urslit.png
urslit.png (31.76 KiB) Skoðað 1693 sinnum
Aðstoðarmennirnir Árni, Gunnar og Hannes fá kærar þakkir fyrir aðstoðina frá keppendum og mótsstjórn.


Hér má sjá hluti hópsins í Kömbunum í morgun.
IMG_0447.jpg
IMG_0447.jpg (121.22 KiB) Skoðað 1693 sinnum
IMG_0448.jpg
IMG_0448.jpg (83.45 KiB) Skoðað 1693 sinnum
Verið að græja stangirnar.
IMG_0449.jpg
IMG_0449.jpg (97.78 KiB) Skoðað 1693 sinnum
IMG_0450.jpg
IMG_0450.jpg (100.36 KiB) Skoðað 1693 sinnum
IMG_0452.jpg
IMG_0452.jpg (103.56 KiB) Skoðað 1693 sinnum
Vængbitinn fór frekar illa í einni lendingunni!
IMG_0465.jpg
IMG_0465.jpg (150.73 KiB) Skoðað 1693 sinnum
samsett2.jpg
samsett2.jpg (97.26 KiB) Skoðað 1693 sinnum
IMG_0466.jpg
IMG_0466.jpg (160.39 KiB) Skoðað 1693 sinnum
Nestið var að sjálfsögðu á sínum stað.
IMG_0468.jpg
IMG_0468.jpg (158.68 KiB) Skoðað 1693 sinnum
IMG_0471.jpg
IMG_0471.jpg (185.29 KiB) Skoðað 1693 sinnum
IMG_0497.jpg
IMG_0497.jpg (163.21 KiB) Skoðað 1693 sinnum
samsett3.jpg
samsett3.jpg (83.21 KiB) Skoðað 1693 sinnum
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11420
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Þorlákshöfn - 21.maí 2020 - Maímót F3F

Póstur eftir Sverrir »



Áhugasamir geta séð lengri útgáfu af hikmyndinni (færri rammar á sekúndu) á YouTube.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Elli Auto
Póstar: 50
Skráður: 16. Jan. 2015 22:00:31

Re: Þorlákshöfn - 21.maí 2020 - Maímót F3F

Póstur eftir Elli Auto »

20200521_122112_2_smækud.jpg
20200521_122112_2_smækud.jpg (202.64 KiB) Skoðað 1562 sinnum

20200521_122034_2_smækud.jpg
20200521_122034_2_smækud.jpg (348.54 KiB) Skoðað 1589 sinnum
Síðast breytt af Sverrir þann 23. Maí. 2020 19:35:50, breytt 1 sinni.
Ástæða: Sameining pósta
Svara