Draumavélin hans Tomma

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Draumavélin hans Tomma

Póstur eftir Gaui »

Ég er a byrja að smíða flugmódel fyrir hann Tómas Jónsson, módel af flugvél sem hann hefur dreymt um í mörg ár, eiginlega síðan hann var lítill gutti. Hér er mynd af hluta hennar. Hver getur upp á hvaða flugvél þetta er?
20200701_165413.jpg
20200701_165413.jpg (134.05 KiB) Skoðað 3871 sinni
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstur eftir Gaui »

Stélkamburinn er frekar einfaldur og lamirnar bara krossviðartungur sem taka við teini sem stungið er niður í kambinn. Hér er annað skinnið komið á kambinn og þá verða tungurnar að fara í.
20200702_123821.jpg
20200702_123821.jpg (135.79 KiB) Skoðað 3835 sinnum
Hér er svo kamburinn og hliðarstýrið komin saman og formuð að mestu. Hugsanlega þarf að pússa eitthvað smá, en það verður bara síðar.
20200702_143802.jpg
20200702_143802.jpg (149.66 KiB) Skoðað 3835 sinnum
Beygjuradíusinn alves snyrtilegur.
20200702_143839.jpg
20200702_143839.jpg (149.14 KiB) Skoðað 3835 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstur eftir Gaui »

Hér er kominn hálfur stélflötur:
20200703_161800.jpg
20200703_161800.jpg (130.15 KiB) Skoðað 3796 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstur eftir Gaui »

Nú er stélflöturinn orðinn tvöfaldur, svo það er tími til að setja hæðarstýrin saman.
20200705_114053.jpg
20200705_114053.jpg (127.84 KiB) Skoðað 3756 sinnum
Hérna er efnið sem þarf í hæðarstýrin (eða þannig)
20200705_135653.jpg
20200705_135653.jpg (152.5 KiB) Skoðað 3756 sinnum
Allur balsinn kominn á sinn stað.
20200705_145316.jpg
20200705_145316.jpg (146.79 KiB) Skoðað 3756 sinnum
Það er ótrúlegt hvað það myndast mikið ryk þegar 1,5mm balsi er pússaður niður.
20200706_143153.jpg
20200706_143153.jpg (147.51 KiB) Skoðað 3756 sinnum
Ég get ekki klárað stýrin fyrr en búið er að setja stélið á skrokkinn, svo þá er bara að snúa sér að næsta parti.

8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11420
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstur eftir Sverrir »

Stórglæsilegt, Tommi verður sérdeilis kátur! :cool:
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstur eftir Gaui »

Það er þó nokkur fjöldi vængrifja í þessari vél. Ég er búinn að vera í allan dag að skera þau út.
20200707_214740.jpg
20200707_214740.jpg (155.91 KiB) Skoðað 3719 sinnum
Dökku stykkin hæra og vinstra megin við vængrifin eru mótorfestingarnar. Þær þurfa að koma á miðjuvænginn á meðan honum er raðað saman.

8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstur eftir Gaui »

Eftir erfitt kvef er ég aftur byrjaður á Þristinum hans Tomma. Hér er ég að raða rifjunum á vængmiðjuna:
20200718_145839.jpg
20200718_145839.jpg (128.45 KiB) Skoðað 3642 sinnum
20200718_162110.jpg
20200718_162110.jpg (150.26 KiB) Skoðað 3642 sinnum
Nú vantar mig bara tvo mótora til að geta klárað mótorfestingarnar.

8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstur eftir Gaui »

Þá heldur Vængmiðjan á Draumavélini hans Tomma áfram. Hér er afturbrúnin komin á til að verja rifin of klæðningin til hliðar að festast í öllu líminu sem ég sullaði á rifin.
20200721_111524.jpg
20200721_111524.jpg (144.98 KiB) Skoðað 3590 sinnum
Hér sést að ég setti vef á milli rifjanna þó að teikning og leiðbeiningar hafi ekki farið fram á slíkt. Þetta styrkir bara vænginn, og ekki veitir af.
20200721_114101.jpg
20200721_114101.jpg (124.57 KiB) Skoðað 3590 sinnum
Hér er frambrúnarklæðningin komin á og framparturinn á vængnum myndar lokað D-box. Það ætti að koma í veg fyrir að vængmiðjan geti undist (vonandi) þó að botklæðningin sé ekki komin á alveg strax.
20200721_130141.jpg
20200721_130141.jpg (145.54 KiB) Skoðað 3590 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstur eftir Gaui »

Ég er byrjaður að skera út skrokkrifin. Það eru 21 rif, svo að þessi 11 eru um það bil helmingurinn.
20200802_113237.jpg
20200802_113237.jpg (143.84 KiB) Skoðað 3484 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstur eftir Gaui »

Nú get ég byrjað að raða skrokknum saman. Ég ætla að smíða skrokkinn heilan, ekki hluta hann í tvent eins og teikningin sýnir. og þess vegan byrja ég á að skera út balsabretti sem er eins í laginu og kjölurinn undir skrokknum. Þetta undirlag, eða skorður lími ég á beint og slétt smíðabretti. Hér er kjölurinn líka kominn á: honum er haldið á sínum stað með límböndum.
20200806_150029.jpg
20200806_150029.jpg (152.96 KiB) Skoðað 3399 sinnum
Svo er hægt að raða rifjunum á. Ég byrja á miðjum skrokknum yfir vængnum, því þar eru hliðarnar alveg samsíða. Þegar búið er að líma þessi rif föst ætti grindin að vera nokkuð stíf. Ef ekki, þá set ég skástífur á hana til öryggis á meðan ég raða restinni af rifjunum á.
20200806_161747.jpg
20200806_161747.jpg (152.68 KiB) Skoðað 3399 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara