Sandskeið - 11.júlí 2020 - Hástartmót

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Sandskeið - 11.júlí 2020 - Hástartmót

Póstur eftir Sverrir »

Fyrstu menn mættu á svæðið upp úr hálftíu í morgun en upp úr tíu kom meginþorri flugmanna á svæðið. Súld var í lofti og margir hverjir ekkert bjartsýnir á framhaldið, spilinu var þó stillt upp en eitthvað fækkaði í hópnum í kringum hádegið. Um hálf eitt leytið fór að létta til, eins og spá Veðurstofunnar hljóðaði upp á, þannig að þá var ekkert að vanbúnaði að hefja leik. Hins vegar var ákveðið að bíða aðeins með Íslandsmótið þangað til betur stæði á með von um betri þátttöku. Ef veður verður of gott fyrir hang á ágústmótinu þá skellum við Íslandsmótinu upp á þeim degi.

Veðrið batnaði svo bara eftir því sem leið á daginn og var farið að sjást í bláan himinn og sólarglettu seinni partinn. Dagurinn var vel nýttur og voru flognar 5 umferðir fram að kaffi en svo var pakkað saman og haldið heim á leið. Ég og Elli ákváðum að kíkja við á Hamranesinu á heimleiðinni og verður sú saga rakin annars staðar.

Böðvar mætti með tvær hraðskreiðustu hangvélar landsins til keppni en tímarnir voru flognir í Viking Race 1998. Ég braut svo gíra í flapanum í fyrstu lendingunni svo það varð ekki mikið meira um keppnisflug hjá mér þann daginn. Steini kollslúttaði rafhlöðunni hjá sér þegar vír losnaði í tenginu en sem betur fer þá var Ellli aflögufær með rafhlöðu fyrir hann. Sérstakar þakkir fá Árni, Einar Páll og Erlingur sem aðstoðuðu við mótshaldið.

Erlingur og Böðvar sáust með myndavélar á lofti svo hver veit nema það komi meira efni frá þeim og svo mundum við aldrei þessu vant að byrja á hópmyndatöku. ;)

Eftir 5 umferðir, þar sem þeirri lökustu var sleppt, fóru leikar sem svo.*
Óskum Böðvari til hamingju með sigurinn.

urslit.gif
urslit.gif (5.01 KiB) Skoðað 1778 sinnum
* Hrágögnin eru neðst í myndapakkanum ef einhverjir vilja spreyta sig á útreikningum.
Viðhengi
IMG_1322.jpg
IMG_1322.jpg (165.42 KiB) Skoðað 1778 sinnum
IMG_1324.jpg
IMG_1324.jpg (215.1 KiB) Skoðað 1778 sinnum
IMG_1325.jpg
IMG_1325.jpg (303.03 KiB) Skoðað 1778 sinnum
IMG_1326.jpg
IMG_1326.jpg (174.46 KiB) Skoðað 1778 sinnum
IMG_1327.jpg
IMG_1327.jpg (219.6 KiB) Skoðað 1778 sinnum
IMG_1330.jpg
IMG_1330.jpg (159.35 KiB) Skoðað 1778 sinnum
IMG_1331.jpg
IMG_1331.jpg (203.19 KiB) Skoðað 1778 sinnum
IMG_1332.jpg
IMG_1332.jpg (269.28 KiB) Skoðað 1778 sinnum
IMG_1333.jpg
IMG_1333.jpg (255.86 KiB) Skoðað 1778 sinnum
IMG_1334.jpg
IMG_1334.jpg (32.57 KiB) Skoðað 1778 sinnum
IMG_1359.jpg
IMG_1359.jpg (138.56 KiB) Skoðað 1778 sinnum
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Böðvar
Póstar: 475
Skráður: 17. Apr. 2004 09:20:53

Re: Sandskeið - 11.júlí 2020 - Hástartmót

Póstur eftir Böðvar »

Tók upp smá vídeó þegar ég var ekki upptekinn við að keppa sjálfur.
Með kærri þökk fyrir mótshaldið, sem var til fyrirmyndar :)

Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Sandskeið - 11.júlí 2020 - Hástartmót

Póstur eftir Sverrir »

Gaman að þessu, takk fyrir!
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Sandskeið - 11.júlí 2020 - Hástartmót

Póstur eftir Sverrir »

Mynd frá Ella.
elli_DSC0182.jpg
elli_DSC0182.jpg (155.49 KiB) Skoðað 1628 sinnum

Mynd frá Jóni.
JVP_sandskeið.jpg
JVP_sandskeið.jpg (249.66 KiB) Skoðað 1628 sinnum
Icelandic Volcano Yeti
Svara