En svo tóku markaðsöflin í taumana og ákváðu að annað hvort væri ekki gott fyrir íslenska alþýðu að nota svona efni, eða að það þyrfti að fá fólk til að kaupa eitthvað annað sem réttu innflutningsaðilarnir ættu rétt á (þetta eru bara ágiskanir hjá mér, því afgreiðslumenn í fylliefnabúðum virðast ekki vita hvernig vörur birtast þar í hillum). Það sem okkur var nú boðið upp á var DAP Fast'n'Final Lightweight Spackling. En hér voru nokkrir hængar á: Þetta var mun þyngra en Djöfullinn, það var ekki eing þægilegt að dreyfa því á stykkið og, sem tók nú alveg steininn úr, þornaði aldrei almennilega. Síðan, þegar maður pússaði efnið, þá rúllaðist það endalaust undan sandpappírnum og myndaði fleira klám og rifur en það sem maður var að reyna að gera við. Í einu orði sagt: alveg hræðilegt.
En þegar neyðin er stærst, þá lærir maður að spinna: Í verslun hér á Akureyri, sem kennd er við Flügger málningu fann ég fylliefni sem ég held ég geti notað: Flügger Easy Filler! Það er álíka létt og Djöfullinn, dreyfist auðveldlega og pússast eins og draumur. Til að sanna mál mitt gerði ég smá tilraun. Ég tók balsaspýtu, gerði í hana nokkrar mis stórar rifur og glattaði svo yfir með Léttfyllinum frá Flügger. Þetta ætlaði ég svo að pússa seinna um kvöldið. Það vildi, hins vegar, svo til að ég komst ekki í þessa pússivinnu fyrr en daginn eftir, svo efnið fékk nægan tíma til að þorna og harðna. En hér eru myndir sem ég tók:
Hér er balsaspýtan með efninu á. Ég vandaði mig ekkert sérlega, þannig að smá hluti stærstu rifunnar er ekki fylltur, em ... Hér er stykkið eftir fyrstu tvær strokurnar með P80 sandpappír. Það sést greinilega að efnið losnar upp í fínu dufti, en rúllast ekki upp. Hér er stykkið eftir að búið er að pússa það fyrst með P80 pappír og svo smá með P120 pappír. Fylliefnið pússast á undan balsanum og það sér nánast ekki á yfirborðinu að balsi hafi horfið. Þegar dósin er skoðuð nánar kemur í ljós að það eru leiðbeiningar á fjórum tungumálum, dönsku, sænsku, norsku, og pólsku. Síðan eru smávegis upplýsingar um hættulegt innihald á íslensku (ég hef aldrei heyrt um sæfiefni og veit ekki hvað þau eru eða hvað þau gera). Þeir Flüggeristar nenntu greinilega ekki að þýða leiðbeiningarnar yfir á íslensku (enda ekki líklegt að íslendingar myndu staldra við og lesa dolluna fyrir notkun), en ÉG var tilbúinn til þess og það tók mig heilar 15 mínútur að gera það:
Þarna er, sem sagt, komið fylliefni fyrir okkur, sem hentar vel á balsann, er þægilegt í notkun og pússast vel.Létt, hvítt fylliefni, sem er óvenjulega auðvelt og hentugt í notkun vegna þess að innihaldið verður eins og þeyttur rjómi. Rýrnar ekki og springur ekki. Notist bæði inna og utan dyra til að fylla í rifur og göt í múrsteinum, steinsteypu, gifsi, múrverki og tré. Þolir nokkurn raka. Ekki hentugt til notkunar þar sem vatn getur stöðugt leikið um það.
Undirlag: Skal vera hreint þurrt og þétt. Úðið yfirborðið létt með vatni áður en efnið er borið á.
Notkun: Smyrjið á með spaða. Eftir að efnið hefur þornað má pússa það með fínum sandpappír. Lágmarks hiti við notkun og þornun: +10°C. Mesti loftraki 80%.
Þurrktími við 20°C, 60% raka: Snertiþurrt: 30 mínútur. vinnsluþurrt: 60 mínútur, Gegnþurrt: Nokkrir dagar.
Nýting: 1m² á lítra með 1mm þykkt lag.
Þynning: Þynnist ekki.
Hreinsun á verkfærum: Með vatni.
Geymsla: Á köldum, en frostfríum stað, lokist þétt.
Takk fyrir mig, Flügger!