Sandskeið - 4.júní 2022 - Kríumótið

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11427
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Sandskeið - 4.júní 2022 - Kríumótið

Póstur eftir Sverrir »

Veðurútlitið var ekki bjart fyrir viku síðan en eins og við vitum þá getur veðurútlitið breyst skjótar en hendi er veifað og þó það hafi ekki verið raunin í dag þá fór spáin batnandi þegar leið á vikuna. Svo var algjör bongóblíða á Sandskeiðinu í dag þó oft á tíðum kólnaði full mikið þegar ský dróg fyrir sólu þá gripu menn bara næstu yfirhöfn á meðan á því stóð.

Hægur vestlægur vindur beint eftir skeiðinu var niðurstaða dagsins, með einhverri uppstreymisvirkni, misgóðri þó. Þrír keppendur fór nálægt sex mínútunum og besti tíminn í hraðafluginu var rétt rúmlega 19 sekúndur og náðu þrír keppendur að vera í nær tuttugu sekúndunum heldur en þrjátíu. Mini Graphite var vinsælasta flugmódel dagsins en 3 slíkar mættu til leik en að auki voru Freestyler, Pike Precision og Respect mættar til leiks.

Sem fyrr var byrjað á tímafluginu og voru tímarnir allt frá einni og hálfri mínútu og upp í sex mínútur svo aðstæður voru breytilegar en almennt bara þokkalega góðar. Stebbi varð fyrir því óláni að missa vélina niður í spilstartinu fyrir þriðju umferðina af tímafluginu og missti þar af leiðandi af hraðafluginu en tók þá í staðinn að sér hliðvörslu í B hliðinu og fær kærar þakkir fyrir það.

Árni og Steini fá kærar þakkir fyrir veitta aðstoð, hefði orðið erfitt án þeirra, keppendur fá kærar þakkir fyrir skemmtilegt mót og minni ég á að næsta hástartsmót verður þann 25. júní nk. á Sandskeiði.

Áhugasamir geta séð nánari útlistun á vef F3X Vault, https://f3xvault.com/?action=event&func ... nt_id=2424
urslit_web.png
urslit_web.png (76.98 KiB) Skoðað 573 sinnum


Viðhengi
IMG_9162.jpg
IMG_9162.jpg (395.3 KiB) Skoðað 576 sinnum
IMG_9163.jpg
IMG_9163.jpg (385.21 KiB) Skoðað 576 sinnum
IMG_9164.jpg
IMG_9164.jpg (323.27 KiB) Skoðað 576 sinnum
IMG_9168.jpg
IMG_9168.jpg (237.62 KiB) Skoðað 576 sinnum
IMG_9171.jpg
IMG_9171.jpg (163.59 KiB) Skoðað 576 sinnum
IMG_9172.jpg
IMG_9172.jpg (204.15 KiB) Skoðað 576 sinnum
IMG_9173.jpg
IMG_9173.jpg (177.46 KiB) Skoðað 576 sinnum
IMG_9176.jpg
IMG_9176.jpg (294.99 KiB) Skoðað 576 sinnum
IMG_9177.jpg
IMG_9177.jpg (233.78 KiB) Skoðað 576 sinnum
IMG_9180.jpg
IMG_9180.jpg (315.29 KiB) Skoðað 576 sinnum
IMG_9184.jpg
IMG_9184.jpg (182.1 KiB) Skoðað 576 sinnum
IMG_9185.jpg
IMG_9185.jpg (270.43 KiB) Skoðað 574 sinnum
IMG_9186.jpg
IMG_9186.jpg (167.74 KiB) Skoðað 573 sinnum
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
gudjonh
Póstar: 850
Skráður: 27. Feb. 2008 09:07:06

Re: Sandskeið - 4.júní 2022 - Kríumótið

Póstur eftir gudjonh »

Fallegur dagur á Sandskeiði. Var feginn að hafa verið í síðu nærbuxunum. Takk fyrir daginn.
Viðhengi
20220604_110737_compress67.jpg
20220604_110737_compress67.jpg (409.5 KiB) Skoðað 506 sinnum
20220604_105015_compress5.jpg
20220604_105015_compress5.jpg (461.77 KiB) Skoðað 506 sinnum
20220604_111956_compress76.jpg
20220604_111956_compress76.jpg (459.55 KiB) Skoðað 506 sinnum
20220604_133716_compress37.jpg
20220604_133716_compress37.jpg (342.15 KiB) Skoðað 506 sinnum
20220604_114904_compress71.jpg
20220604_114904_compress71.jpg (435.34 KiB) Skoðað 506 sinnum
Svara