Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

Við Elfar höfum fengið inni hjá stórfyrirtæki á Dalvík. Við byrjuðum í dag að koma okkur fyrir.
smíakjallari.jpg
smíakjallari.jpg (296.52 KiB) Skoðað 1018 sinnum
Það verður smíðað þarna.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
maggikri
Póstar: 5603
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Í kjallaranum

Póstur eftir maggikri »

Flott!

kv
MK
Passamynd
Árni H
Póstar: 1585
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Í kjallaranum

Póstur eftir Árni H »

Þetta er glæsilegt!
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11420
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Í kjallaranum

Póstur eftir Sverrir »

Schnilld, til lukku!
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Í kjallaranum

Póstur eftir Gaui »

Fleiri myndir úr kjallaranum. Í kvöld var fyrsta opinbera smíðakvöldið okkar og við erum að koma okkur vel fyrir.

Ég er byrjaður að hreinsa klæðninguna af SKY 120. Ég þarf að laga ýmsar skemmdir og klæða hann upp á nýtt.
20221110_193324.jpg
20221110_193324.jpg (155.29 KiB) Skoðað 930 sinnum
Elvar er að smíða skrokk fyrir CAP 21 upp úr teikningu frá Practical Scale í Þýskalandi.
20221110_193343.jpg
20221110_193343.jpg (158.57 KiB) Skoðað 930 sinnum
Það er bjart og hlýtt hjá okkur og nóg pláss ef einhverjir aðrir vilja vera með.
20221110_193352.jpg
20221110_193352.jpg (134.39 KiB) Skoðað 930 sinnum
Við tókum "eldhúskrókinn" í gegn og settum upp kaffikönnu. Þaður smíðar ekki án þess að fá kaffi!
20221110_193359.jpg
20221110_193359.jpg (127.83 KiB) Skoðað 930 sinnum
Skrokkrifin verða til hjá Elvari.
20221110_213638.jpg
20221110_213638.jpg (129.33 KiB) Skoðað 930 sinnum
Steve Holland setti út á öryggisbúnaðinn, svo ég notaði allt og sendi honum. Honum fannst ég hefði þurft að setja upp hanska.
20221110_213654.jpg
20221110_213654.jpg (153.36 KiB) Skoðað 930 sinnum
gaui
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Í kjallaranum

Póstur eftir Gaui »

Ég tók meiri filmu af SKÆjaranum í morgun. Ég vissi að mýsnar á Grísará höfðu nagað hægri vængin sæmilega vel, en á sínum tíma bara plastaði ég yfir skemmdirnar og hélt áfram að fljúga. Nú kom í ljós hvað þetta var mikið ver og hellingur sem þarf að laga. Það tekur margar heimsóknir í kjallarann að laga.

Mýsnar höfðu m.a. reynt að naga sig út úr vængnum, gerðu gat á balsaklæðninguna og skófu plastfilmuna að innan. Þetta leit svona út:
20221112_112140.jpg
20221112_112140.jpg (125.97 KiB) Skoðað 909 sinnum
Ég tók plastfilmuna af í morgun og þá kom þetta í ljós:
20221112_112437.jpg
20221112_112437.jpg (133.54 KiB) Skoðað 909 sinnum
Greinilegt að ég þarf að endurnýja balsaklæðninguna eitthvað. Ég reyni að sýna margt af því sem ég þarf að gera við.

Það má alveg nefna að ég þurfti að skipta um allar leiðslur í báðum vængjum: einangrun er greinileg mesta namm í heimi.

gaui
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Í kjallaranum

Póstur eftir Gaui »

Skemmtilegt smíðakvöld í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík. Mér tókst að fylla í holuna á vængnum. Nú líður mér eins og tannlækninum í Karíus og Baktus.
20221117_202258.jpg
20221117_202258.jpg (139.02 KiB) Skoðað 839 sinnum
Þessi (heimasmíðaða?) slípivél var hér i kjallaranum þegar við komum okkur fyrir. Elvar notaði hana vel í kvöld.
20221117_205401.jpg
20221117_205401.jpg (151.2 KiB) Skoðað 839 sinnum
Hellingur af fylliefni til að gera hægri vænginn sléttan. Hinn er jafnvel verri.
20221117_212120.jpg
20221117_212120.jpg (140.93 KiB) Skoðað 839 sinnum
Elvar er byrjaður að raða saman CAP 21 skrokknum á svona alvöru smíðabretti.
20221117_214703.jpg
20221117_214703.jpg (133.75 KiB) Skoðað 839 sinnum
Fleiri myndir á laugardag.
gaui
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Árni H
Póstar: 1585
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Í kjallaranum

Póstur eftir Árni H »

Stórglæsileg slípivél! :D Og ekki er verra að það sé Cap á borðinu!
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Í kjallaranum

Póstur eftir Gaui »

Það er enn smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík:

Það skotgengur með CAPpann hjá Elvari:
20221124_191918.jpg
20221124_191918.jpg (123.75 KiB) Skoðað 750 sinnum
20221124_201829.jpg
20221124_201829.jpg (119.12 KiB) Skoðað 750 sinnum
20221124_210716.jpg
20221124_210716.jpg (150.04 KiB) Skoðað 750 sinnum
20221124_210806.jpg
20221124_210806.jpg (140.19 KiB) Skoðað 750 sinnum
Og SKY fölnar upp. Það er erfiðara en sýnist að rífa gamla klæðningu af og tekur sæmilega langan tíma. Það koma líka í ljós skemmdir sem ég haf bara gert við til bráðbyrgða og þarf núna að laga vel.
20221124_204804.jpg
20221124_204804.jpg (125.38 KiB) Skoðað 750 sinnum
20221124_211917.jpg
20221124_211917.jpg (147.18 KiB) Skoðað 750 sinnum
Meira í næstu viku?
gaui
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Í kjallaranum

Póstur eftir Gaui »

Þessi vika í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík:

Elvar er farinn að setja stélið á CAPpann:
20221201_201547.jpg
20221201_201547.jpg (120.55 KiB) Skoðað 673 sinnum
SKY 120 er eiginlega tilbúinn fyrir plastklæðningu.
20221201_201556.jpg
20221201_201556.jpg (156.83 KiB) Skoðað 673 sinnum
Hér er ég að pússa niður litinn á vélarhlífinni.
20221201_202717.jpg
20221201_202717.jpg (159.81 KiB) Skoðað 673 sinnum
Haukur Guðjónsson kom sér fyrir í kjallaranum með pínulítið smíðaverk: árabát.
20221203_100451.jpg
20221203_100451.jpg (149.57 KiB) Skoðað 673 sinnum
Ingimundur kom með tifsög sem hann á og vill að við geymum fyrir hann. Hún var sett upp og prófuð og virkar fínt.
20221203_104927.jpg
20221203_104927.jpg (124.08 KiB) Skoðað 673 sinnum
Hér er ég búinn að grunna vélarhlífina á SKY 120. Nú má þessi grunnur harðna í nokkra daga og svo renni ég yfir hann með fínum blautpappír áður en ég renni litnum á hana.
20221203_114611.jpg
20221203_114611.jpg (124.09 KiB) Skoðað 673 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara