Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Í kjallaranum

Póstur eftir Sverrir »

Mikið er þetta falleg mynd! :D

Gaui skrifaði: 3. Des. 2022 12:20:12 SKY 120 er eiginlega tilbúinn fyrir plastklæðningu.
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Í kjallaranum

Póstur eftir Gaui »

Takk Sverrir. Skemmir ekki að hafa rétta lesefnið.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

Mér datt í hug að það væri heppilegra að setja hér í vinnuborðsdeildina það sem við erum að gera í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík. Þetta er að mestu fréttir af smíðum okkar þar og því heppilegra að hafa það á vinnuborðinu.

Það er þá vikan 5. til 11. des:

Fimmtudagur:
Það er verulega erfitt og flókið á klæða á stýri sem eru föst á módeli. Þetta tekst þó, með varúð aðgát og lægni.
20221208_203423.jpg
20221208_203423.jpg (130.16 KiB) Skoðað 538 sinnum
Ég hengdi upp skrokkinn, klippti blýið sem var áður undir stéhjólastellinu í ræmur og límdi það innan í skrokkinn aftast.
20221208_203415.jpg
20221208_203415.jpg (146.17 KiB) Skoðað 538 sinnum
Hér sést hvernig það situr. Ég setti svo krossviðarlok á rifið til að styrkja það (gamalt brot) og koma í veg fyrir að blýið geti ferðast fram í skrokkinn.
20221210_094610.jpg
20221210_094610.jpg (106.44 KiB) Skoðað 538 sinnum
Tveir afastrákar kíktu í kjallarann til að sjá hvað afi var að bardúsa.
20221208_195657.jpg
20221208_195657.jpg (154.64 KiB) Skoðað 538 sinnum
Laugardagur:
Ég gekk frá stélhjólafestingunni þannig að hún líti út fyrir að vera hluti af skrokknum, en ekki bara eitthvað auka sem ég henti á skrokkinn (sem ég gerði).
20221210_102908.jpg
20221210_102908.jpg (132.97 KiB) Skoðað 538 sinnum
Ég geri mér grein fyrir að ég sagðist ætla að hafa módelið grænt, en ég fékk ekki græna filmu nógu snemma. Ég átti, hins vegar, fullt af glóaldingulu, og ákvað að nota hann. Liturinn er hér farinn að skríða upp skrokkinn.
20221210_121323.jpg
20221210_121323.jpg (154.52 KiB) Skoðað 538 sinnum
Haukur kíkti við og límdi smávegis á bátinn.
20221210_113103.jpg
20221210_113103.jpg (141.66 KiB) Skoðað 538 sinnum
Meira síðar.

gaui
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

Vikan 12. til 18. desember:

Elvar fittar hliðarstýri á CAPpann.
20221217_113539.jpg
20221217_113539.jpg (115.21 KiB) Skoðað 467 sinnum
Plastfilman skríður hægt og rólega á SKY 120.
20221217_113548.jpg
20221217_113548.jpg (112.66 KiB) Skoðað 467 sinnum
Hér sést neðan á skrokkinn og stélið. Þetta verður allt miklu flottara þegar svarta röndin kemur líka.
20221217_120718.jpg
20221217_120718.jpg (135.33 KiB) Skoðað 467 sinnum
Stélkamburinn pússaður.
20221217_120725.jpg
20221217_120725.jpg (148.72 KiB) Skoðað 467 sinnum
Hvít málning komin á vélarhlífina. Þegar þetta er þurrt get ég skrúfað hana á skrokkinn og maskað fyrir glóaldingula litnum.
20221217_121159.jpg
20221217_121159.jpg (133.36 KiB) Skoðað 467 sinnum
Meira næst
gaui
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Sverrir »

Þetta fer að verða flottasta vél norðan Alpanna! 8-)

Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

Takk, Sverrir.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

Vikan 19. til 25. desember.

Ég er búinn að vera einn í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík þessa vikuna, hinir hafa verið að gera annað eða með Kóvid (Haukur). Og það sér á SKY 120.

Hér er kominn glóaldingulur litur á vélarhlífina -- kannski ekki alveg nákvæmlega sami liturinn, en það tekur enginn eftir því 8-)
20221221_105327.jpg
20221221_105327.jpg (142.71 KiB) Skoðað 378 sinnum
Gluggarnir eru komnir á sinn stað og hjólastellin undir. Mótorinn er tilbúinn og bráðum verða tækin sett í.
20221221_114341.jpg
20221221_114341.jpg (156.61 KiB) Skoðað 378 sinnum
Hér er glóaldingula filman komin á vængina.
20221222_210227.jpg
20221222_210227.jpg (147.54 KiB) Skoðað 378 sinnum
Og nú er ég byrjaður að setja hvítu filmuna á. Vonandi dugar hún (líklega ekki).
20221222_220507.jpg
20221222_220507.jpg (148.74 KiB) Skoðað 378 sinnum
Meira næst og GLEÐILEG JÓL.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

Vikan 26. des 2022 til 1. jan 2023

Nú er ég farinn að taka mér heilsubótargöngu nánast daglega frá Smáravegi 12 í verkstæði í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík og svo heim aftur tveim til þrem tímum seinna. Þetta hefur veruega góð áhrif á heilsuna (er mér sagt) og SKY120 tekur stórum framförum fyrir vikið.
20221228_114057.jpg
20221228_114057.jpg (134.55 KiB) Skoðað 346 sinnum
Nú er allt komið á sína staði nema svarta strikið sem Tommi ætlaði að redda fyrir mig, smá merking á væng (SKY 120) og stélkambinn. Svo þarf ég að tékka að þyngdarpunkturinn sé á réttum stað áður en ég prófa að fljúga henni aftur.

Meira seinna,
gaui
30. des: fór og klippti út stafina SKY 120 og mátaði þá á vænginn. Ég staðsetti stafina á vængnum og festi þá sem eru á vinstri helmingi. Þetta eru, sem sagt, ekki staðlausir stafir! Fann svart strik í fórum mínum (alls ekki nóg fyrir alla flugvélina) og prófaði að leggja á vænginn. Lítur bara vel út:
20221230_114504.jpg
20221230_114504.jpg (120 KiB) Skoðað 316 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

Elvari gengur vel með CAPpann:

Vængurinn er STÓR!
IMG_8186.JPG
IMG_8186.JPG (163.43 KiB) Skoðað 278 sinnum
Hann passar.
IMG_8194.JPG
IMG_8194.JPG (139.58 KiB) Skoðað 278 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

Vorum þrír á verkstæðinu í kvöld:
IMG_8236.JPG
IMG_8236.JPG (143.53 KiB) Skoðað 236 sinnum
IMG_8238.JPG
IMG_8238.JPG (126.15 KiB) Skoðað 236 sinnum
Engin mynd af mér 8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara