Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHTY BARNSTORMER

Vængirnir duttu í sundur eins og það hefði aldrei komið lím nálægt miðjunni. Eftir góðan tíma með pússikubbum eru vængræturnar ásættanlegar.
20230315_100348.jpg
20230315_100348.jpg (135.2 KiB) Skoðað 571 sinni
Það var auðveldara en ég bjóst við að saga hallastýrin laus. Ég ákvað að hafa lamirnar ofantil á stýrunum og nota flatar lamir með þolinmóð. Ég formaði framlistann á hallastýrinu til að gefa góða hreyfingu. Leiðbeiningarnar segja að stýrin þurfi að fara 1/2 tommu eða 12mm niður. Eins og ég tók af þeim núna, þá fara þau 3/4 úr tommu niður, eða 18mm. Þsð ætti að vera alveg nóg.
20230315_111104.jpg
20230315_111104.jpg (151.42 KiB) Skoðað 571 sinni
Ég klæddi endana á hallastýrinu með 0,8mm krossviði til að fá það snyrtilegt.
20230315_112743.jpg
20230315_112743.jpg (118.87 KiB) Skoðað 571 sinni
Og þá passar hallastýrið svona skemmtilega á vænginn.
20230315_112957.jpg
20230315_112957.jpg (152.02 KiB) Skoðað 571 sinni
Það þarf að setja stýrishorn á stýrið og ég gróf 4mm krossvið á milli rifja þar sem það á að vera.
20230315_114549.jpg
20230315_114549.jpg (142.82 KiB) Skoðað 571 sinni
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHTY BARNSTORMER

Báðir vængirnir tilbúnir fyrir stýritækin. Hallastýrin komin með lamir og það má eiginlega fara að klæða með plastfilmu, nema að ég er ekki búinn að fá hana.
20230316_191842.jpg
20230316_191842.jpg (120.77 KiB) Skoðað 554 sinnum
Stélflöturinn límdur á. Stöngin á vængstífunum er til að ég geti kíkt út að það sitji rétt.
20230316_211727.jpg
20230316_211727.jpg (148.17 KiB) Skoðað 554 sinnum
TOWER HOBBIES 40 -- EÐA HVAÐ?

Elvar er að leggja síðustu hönd á TH40 og svo vippaði hann hugsanlegu næsta verkefni upp á borðið: IMAC One Design.
20230316_213504.jpg
20230316_213504.jpg (134.51 KiB) Skoðað 554 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHTY BARNSTORMER

Einu sinni var hægt að kaupa besta sparsl allra tíma: Red Devil OneTime Spakling. Það er létt, fljótt að þorna, rýrnar nánast ekkert og auðvelt að pússa. Þetta var allt of gott til að geta verið áfram á markaðnum og ég er búinn að prófa alls konar spörsl síðan. Ekkert af þeim er jafn gott og RDOTS. Ég er búinn að kaupa, prófa og henda í ruslið mörgum dollum og túbum nánast fullum af alls konar ónothæfum spörslum. Nýjasta tilraunin er Dalapro Nova. Þetta er grátt sparls (ekki létt) sem þornar frekar hratt, rýrnar smá, en er einstaklega auðvelt að pússa. Ég notaði það á vængina og skrokkinn til að fylla ýmis göt og ambögur. Ég pússaði það niður með P240 pappír og það virðist bara ætla að duga.
20230317_094732.jpg
20230317_094732.jpg (127.41 KiB) Skoðað 549 sinnum
Stélkamburinn var næstur. Ég límdi hann niður með trélími og notaði vinkil til að stilla hann af lóðréttan eins og lög gera ráð fyrir.
20230317_113704.jpg
20230317_113704.jpg (143.07 KiB) Skoðað 549 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHHTY BARNSTORMER

Ég var að dútla stanslaust allan morguninn, en það sér nánast ekkert eftir mig. Svona er þegar módel eru nærri tilbúin. Þegar ég sagaði út hryggjarstykkið á módelið, kom í ljós svo mikil spenna í balsanum (30x100x1000mm) að stykkið tók á sig gríðarlega sveigju. Ég er búinn að reyna að rétta úr henni með því að bleyta hana og svo þvinga hana niður á borðið, en ekkert hefur virkað. Í dag sagaði ég tvisvar upp í stykkið, sullaði trélími á milli og festi niður á borð. Vonandi virkar þetta.
20230318_115042.jpg
20230318_115042.jpg (138.74 KiB) Skoðað 534 sinnum
Svo setti ég hornin á bæði hæðarstýri og hliðarstýri og tengdi í servóin í skrokknum. Bæði stýrin virka og hreyfast meira en leiðbeiningarnar mæla með.
20230318_120916.jpg
20230318_120916.jpg (125.81 KiB) Skoðað 534 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHTY BARNSTORMER

Servóin og snúrurnar komnar í vænginn og hallastýrin virka vel.
20230320_104356.jpg
20230320_104356.jpg (121.71 KiB) Skoðað 504 sinnum
Öll grindin í Mighty Barnstormer er komin saman fyrir utan aftara hryggjarstykkið, sem er ekki hægt að setja á fyrr en búið er að klæða módelið með dúk. Eins og það er núna, þá vegur módelið nákvæmlega á réttum jafnvægispunkti (rambar á réttum stað). Ég geri ekki ráð fyrir að ég þurfi að setja mikla auka þyngd í módelið, en það kemur í ljós.
20230320_120337.jpg
20230320_120337.jpg (156.73 KiB) Skoðað 504 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHTY BARNSTORMER

Skáböndin komin á vængstífurnar. Gæti hugsanlega sett þykkari vír og alvöru vantastrekkjara seinna. Servósnúrur fyrir vænginn líka komnar inn.
20230321_104528.jpg
20230321_104528.jpg (118.17 KiB) Skoðað 489 sinnum
Sullaði epoxý kvoðu alls staðar þar sem eldsneyti gæti hugsanlega náð að snerta.
20230321_114744.jpg
20230321_114744.jpg (121.9 KiB) Skoðað 489 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHTY BARNSTORMER

Það eru fá handtökin eftir áður en ég klæði módelið með litríkri plastfilmu. Stélið er allt súrrað saman með vírum og ég var allan morguninn að búa til festingarnar. Hér er tvöfalda festingin efst á stélkambinum.
20230322_104752.jpg
20230322_104752.jpg (155.93 KiB) Skoðað 470 sinnum
Og hér sjást festingarnar neðan á stélinu. Það eru fleiri slíkar ofan á stélinu. Vírinn sem ég nota kemur úr reiðhjólaverslun og er venjulega notaður til að skita um gíra á reiðhjólum. Stélhjólastellið er líka áberandi og tenging þess við sérstaka festingu á hliðarstýrinu
20230322_113309.jpg
20230322_113309.jpg (120.47 KiB) Skoðað 470 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

Fimmtudagur og þá smíðar maður fram a kvöld:

MIGHTY BARNSTORMER

Spaði kominn á og spinner. Nú þarf bara að fara að gangsetja mótorinn og sjá hvernig hann gengur.
20230323_100611.jpg
20230323_100611.jpg (128.29 KiB) Skoðað 440 sinnum
Vírarnir komnir á stélið. Nú vantar mig bara tengingarnar til að klára þetta.
20230323_205623.jpg
20230323_205623.jpg (137.85 KiB) Skoðað 440 sinnum
DC-3

Það eru komin einhver ár síðan ég sullaði fullt af fylliefni á skrokkinn og því kominn tími til að pússa, pússa og pússa
20230323_185548.jpg
20230323_185548.jpg (117.59 KiB) Skoðað 440 sinnum
Og fyllirinn er ekki fyrr orðinn sléttur en það þarf að setja meira. Sem betur fer er þessi auðveldur að pússa.
20230323_200614.jpg
20230323_200614.jpg (139.74 KiB) Skoðað 440 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

DC-3

Ég tel mig vera að mestu búinn að pússa niður hvíta fylliefnið, svo að nú fer að koma tími til að pensla smá glerfíber á skrokkinn. Skoða það eftir helgina.
20230325_121605.jpg
20230325_121605.jpg (128.1 KiB) Skoðað 414 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

DC-3

Ég pússaði niður gráa fylliefnið. Það er mjög þægilegt og pússast mjög vel með fínum pappír: P240. En, það er eins og alltaf, þegar maður telur sig vera búinn að pússa og að nú komi að einhverju öðru, þá koma í ljós fleiri staðir það sem vantar að fylla.
20230327_113402.jpg
20230327_113402.jpg (136.57 KiB) Skoðað 376 sinnum
Og brúni bletturinn er fugladrit úr bílskúrnum á Grísará. Það er algerlega fast í: ég er búinn að prófa að þvo með vatni og pússa aðeins yfir, en það er eins og fyllirinn hafi sogað dritið í sig :o
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara