Helgafell - 29.apríl 2023 - Iceland Open F3F 2023 - Dagur 1

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11440
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Helgafell - 29.apríl 2023 - Iceland Open F3F 2023 - Dagur 1

Póstur eftir Sverrir »

Iceland Open F3F 2023 var á dagskrá dagana 29. apríl til og með 1. maí en að þessu sinni mættu 18 keppendur til leiks, 5 frá Bretlandi, 3 frá Danmörku, 3 frá Íslandi, 3 frá Þýskalandi, 2 frá Taívan, 1 frá Japan og 1 frá Sviss. Ansi alþjóðlegt mót það og margir sem nýttu tækifærið til að ferðast um Ísland, bæði fyrir og eftir mótið, með og án maka.

Laugardagurinn byrjaði bjartur og fagur með bláum skýjum en hitastiginu ansi nálægt frostmarki, þátttakendur voru boðaðir á bílastæði upp á Dvergshöfða þar sem ekki var útséð með hvaða brekka yrði fyrir valinu kvöldinu áður. Þangað mættu menn stundvíslega kl. 8:30 og þar var mótið formlega sett og keppendur fengu afhenta poka með keppnisnúmeri, yfirliti yfir 20 umferðir, merki mótsins og smá íslensku góðgæti. Línur höfðu einnig skýrst með vindinn og blés hann beint á brekkuna í Helgafelli svo þangað var skundað í langri halarófu.

Eftir að hafa labbað upp Helgafellið og sett upp keppnisbrautina, sem samanstendur af miðju þaðan sem þátttakendur fljúga milli tveggja hliða sem staðsett eru 50 metra frá á hvora hönd, samtals 100 metra braut sem flogin er 10 leggi á sem styðstum tíma í hverri umferð, þá hófst fyrsta umferð um hálf ellefu. Við lentum í smá vandræðum í byrjun þar sem tengið fyrir hljóðnemasnúruna í keppnistölvunni var orðið slappt en eftir að hafa fundið vandamálið þá var hægt að vinna framhjá því þannig að það olli ekki alltof miklum vandamálum það sem eftir lifði dags.

Vegna þess tók smá tíma að klára fyrstu umferðina með endurflugum en seinni umferðir gengu mun hraðar fyrir sig. Á milli umferða var tekið 5 mínútna hlé og eftir fjórar umferðir, en þar með varð mótið löglegt, þá var tekið hálftíma hlé en að því loknu var aftur tekið til við flug og náðust þrjár umferðir til viðbótar en samkvæmt dagskrá mótsins voru engar nýjar umferðir flognar eftir kl. 17. Tvö flug voru undir 40 sekúndum en besta tíma dagsins 38.41s, og mótsins eins og síðar kom í ljós, átti Andy Burgoyne í þriðju umferð. Kvöldið var svo notað í viðgerðir á tenginu fyrir hljóðnemann.

Dagur 1 | Dagur 2 | Dagur 3
Viðhengi
IMG_4522.JPG
IMG_4522.JPG (90.17 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4526.JPG
IMG_4526.JPG (320.32 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4528.JPG
IMG_4528.JPG (377.26 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4529.JPG
IMG_4529.JPG (300.24 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4530.JPG
IMG_4530.JPG (266.97 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4531.JPG
IMG_4531.JPG (306.32 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4533.JPG
IMG_4533.JPG (261.36 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4534.JPG
IMG_4534.JPG (246.05 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4537.JPG
IMG_4537.JPG (306.22 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4539.JPG
IMG_4539.JPG (293.42 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4540.JPG
IMG_4540.JPG (241.43 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4541.JPG
IMG_4541.JPG (320.97 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4542.JPG
IMG_4542.JPG (413.16 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4543.JPG
IMG_4543.JPG (333.43 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4544.JPG
IMG_4544.JPG (250.44 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4545.JPG
IMG_4545.JPG (259.64 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4547.JPG
IMG_4547.JPG (253.15 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4548.JPG
IMG_4548.JPG (238.22 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4549.JPG
IMG_4549.JPG (471.9 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4551.JPG
IMG_4551.JPG (245.01 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4553.JPG
IMG_4553.JPG (257.75 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4556.JPG
IMG_4556.JPG (279.05 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4560.JPG
IMG_4560.JPG (421.3 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4563.JPG
IMG_4563.JPG (248.21 KiB) Skoðað 108 sinnum
IMG_4564.JPG
IMG_4564.JPG (249.61 KiB) Skoðað 108 sinnum
Staðan eftir 7 umferðir
Staðan eftir 7 umferðir
stadan_eftir_7umferdir.jpg (166.54 KiB) Skoðað 108 sinnum
Icelandic Volcano Yeti
Svara