D.B. Sport & Scale S.E. 5a

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3693
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a

Póstur eftir Gaui »

Dagur 40

Aðal verk dagsins var að búa til formin utan á hjólastellið. Þetta var svo límt á með góðri slummu af epoxý lími.
20230525_190736.jpg
20230525_190736.jpg (135.89 KiB) Skoðað 593 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3693
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a

Póstur eftir Gaui »

Dagur 41

Búinn að byggja upp formið á skrokkstífunum. Nú er bara að forma dropalag á þetta og fylla í þar sem vantar að fylla í.
20230526_111454.jpg
20230526_111454.jpg (131.34 KiB) Skoðað 587 sinnum
Öxulhúsið undir hjólastellinu límt saman og formað. Það er líka dropalaga.
20230526_114840.jpg
20230526_114840.jpg (139.02 KiB) Skoðað 587 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3693
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a

Póstur eftir Gaui »

Dagur 42

Stuttur laugardagur. Ég pússaði til balsann á hjólastellinu.
20230527_094605.jpg
20230527_094605.jpg (146.93 KiB) Skoðað 572 sinnum
Á meðan ég kemst að því, þá ákvað ég að taka úr sporið fyrir Vickers byssuna og troða henni í. Ég þarf að setja vegg í kringum byssuna og smá krossviðarklæðningu yfir hana og síðan getað troðið henni í eftir klæðningu og málningu.
20230527_104048.jpg
20230527_104048.jpg (153.04 KiB) Skoðað 572 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3693
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a

Póstur eftir Gaui »

Dagur 43

Stuttur dagur aftur í dag. Ég byrjaði á því að pússa til skrokkstífurnar og fá á þær það form sem á að vera. Svo límdi ég rif og klæðningu ofan á þar sem Vickers byssan á að vera.
20230529_094719.jpg
20230529_094719.jpg (156.1 KiB) Skoðað 550 sinnum
Og hér er hún komin í (ég þurfti að skafa smá af henni, en það sést ekki).
20230529_101327.jpg
20230529_101327.jpg (147.79 KiB) Skoðað 550 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3693
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a

Póstur eftir Gaui »

Dagur 44

Festi Lewis byssuna ofan á efri vængmiðjuna.
20230530_100535.jpg
20230530_100535.jpg (135.88 KiB) Skoðað 537 sinnum
Eftir að festingarnar voru komnar í gat ég límt krossviðar skinnið á miðjuna.
20230530_114331.jpg
20230530_114331.jpg (129.22 KiB) Skoðað 537 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3693
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a

Póstur eftir Gaui »

Dagur 45

Nokkur smáverk í dag: Í fyrsta lagi skoðaði ég hvernig stýrisstöng getur tengst við hæðarstýrið. Það kom í ljós, sem ég hafði ekki tekið eftir áður, að gatið í arminum er 3mm. Það eru engin tengsl svona stór, svo ég boraði nýtt 2mm gat sem getur haldið við M3 tengsl án hlaups.
20230531_100707.jpg
20230531_100707.jpg (123.68 KiB) Skoðað 519 sinnum
Svo skar ég til krossviðarklæðnunguna á hliðarnar og límdi á. Þetta setur mikinn svip á módelið.
20230531_104937.jpg
20230531_104937.jpg (139.36 KiB) Skoðað 519 sinnum
Að síðustu skar ég til hauspúðann og athugaði hvernig hann kemur til með að passa þegar dúkurinn er kominn á.
20230531_112457.jpg
20230531_112457.jpg (149.13 KiB) Skoðað 519 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3693
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a

Póstur eftir Gaui »

Dagur 46

Allur morguninn í morgun fór í að koma fyrir servóum fyrir mótorinn: inngjöf og innsog. Þetta svæði verður frekar bissí. Kveikjan verður við hliðina á tankinum og rafhlöður koma þar sem þær gera mest gagn.
20230601_113302.jpg
20230601_113302.jpg (151.8 KiB) Skoðað 502 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3693
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a

Póstur eftir Gaui »

Dagur 47

Ég prófaði að setja gult Sullivan innra rör úr stýriskapli í 3mm gatið og það passaði. Ég skar af því báðum megin, svo það varð jafn þykkt og stýrisarmurinn og nú er ég kominn með fóðringu fyrir tengslið sem á að vera þarna.
20230602_092923.jpg
20230602_092923.jpg (130.31 KiB) Skoðað 499 sinnum
Ég setti rör fyrir tog-tog vírana í hliðarstýrið. Það eru tvö pör af vírum, annað fyrir hliðarstýrið sjálft og hitt fyrir stéldragið. Ég sé til hvort vírarnir fara á sitt hvort servóið, eða sama servóið. Það kemur í ljós, en það er pláss fyrir tvö servó.
20230602_112626.jpg
20230602_112626.jpg (133.88 KiB) Skoðað 499 sinnum
Ég fékk athugasemdir frá fylgjendum á RC Scale Builder og ákvað að kíkja aðeins á tankinn og innsogsvírinn. Mér tókst að ýta tankinum aðeins til vinstri og með því að snúa servóinu gat ég sett nánast beinan vír í innsogið.
20230602_114714.jpg
20230602_114714.jpg (135.53 KiB) Skoðað 499 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3693
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a

Póstur eftir Gaui »

Dagur 48
Kláraði vængstífurnar. Beygði til skávírana, batt þá við stífurnar og bar epoxý lím á. Nú er bara eftir að setja diskana sem segulstálin grípa.
20230603_101059.jpg
20230603_101059.jpg (123.54 KiB) Skoðað 482 sinnum
Klippti út og formaði vélarhausana sem standa út úr vélarhlífinni. Þetta er gert úr ABS plasti og maður þarf að passa sig að skera ekki of mikið.
20230603_103338.jpg
20230603_103338.jpg (154.07 KiB) Skoðað 482 sinnum
Til að gefa heddunum smá massa og auka límflötinn setti ég ræmur af 3mm balsa innan í þá og stífaði svo af með balsa.
20230603_110513.jpg
20230603_110513.jpg (155.58 KiB) Skoðað 482 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3693
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a

Póstur eftir Gaui »

Dagur 49

Nokkur smáverk í dag. Ég pantaði dúk a dögunum (Oratex) og það verða engin stærri verk í pípunum fyrr en hann kemur.

Ég setti smá búta fyrir framan og aftan festingarnar á Lewis byssunni til að þetta liti út fyrir að vera alvöru festingar. Líklega verða þær ekki sæmilega fyrr en ég er búinn að mála byssuna.
20230605_101626.jpg
20230605_101626.jpg (152.32 KiB) Skoðað 464 sinnum
Ég setti málmdiska ofan á stífurnar. Þessir diskar festast við segulstál sem eru undir efri vængjunum. Ég var ekkert svakalega viss um að þetta gæti virkað, en það gerir það nú samt. Stífurnar rammfestast við vænginn. Hyssa ég.
20230605_105312.jpg
20230605_105312.jpg (156.55 KiB) Skoðað 464 sinnum
Svo setti ég fylliefni á skrokkstífurnar þar sem þær hverfa inn í skrokkinn. Ég tálgaði fyllinguna smá til, enda er hún eins og mjúkur ostur þegar hún byrjar að harðna. Svo pússa ég þetta til á morgun.
20230605_113608.jpg
20230605_113608.jpg (125.03 KiB) Skoðað 464 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara