Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir einarak »

Þetta er spennandi verkefni og alltaf gaman að fylgjast með smíðinni hjá þér Gaui.
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF FRU -- dagur 10

Í dag fóru aftari skrokkrifin í og langböndin í kringum þau. Þetta hljómar eins og létt verk og löðurmannlegt, en það tók mig nánast allan morguninn að raða þessu saman.
20231208_100824.jpg
20231208_100824.jpg (140.07 KiB) Skoðað 1308 sinnum
Svo, þegar allt var eins og það átti að vera, þá renndi ég sekúndulími á öll samskeyti og skrokk grindin er komin. Ég mátaði stélflötinn á sinn stað og hann datt inn og passaði bara stórkostlega. Þetta er farið að líta út eins og Cessna. Nú þarf ég að finna til 3 mm balsaplötur og líma þær utan á skrokkinn.
20231208_121647.jpg
20231208_121647.jpg (142.52 KiB) Skoðað 1308 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF FRU -- dagur 11

Ég losaði skrokk grindina af stólunum og sneri henni við til að festa niður langböndin undir nefið. Þá tók ég eftir því að ég hefði átt að vera búinn a festa hjólastellið á. Það kemur nefnilega undir langböndin. Ég skellti stellinu í, en þá kom í ljós að götin á því lenda nákvæmlega þar sem langböndin eru, svo ég þurfti að tvöfalda þau á parti. Það er alveg möguleiki að ég opni botninn fyrir framan og aftan hjólastellið og geri lok sem ég get tekið af til að ná stellinu af.
20231209_103932.jpg
20231209_103932.jpg (140.99 KiB) Skoðað 1290 sinnum
Ég byrjaði svo að líma balsa klæðninguna á, en náði bara að setja annan helminginn á botninn. Það er hægt að setja klæðninguna í heilum borðum á stóra hluta skrokksins, en annars staðar þarf að setja planka.
20231209_122355.jpg
20231209_122355.jpg (145.68 KiB) Skoðað 1290 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 12

Ég byrjaði morguninn á því að líma hinn helminginn af botninum á Cessnuna.
20231211_093524.jpg
20231211_093524.jpg (127 KiB) Skoðað 1268 sinnum
Svo gerði ég endurbætur á fatafellunni minni (stripper = fatafella). Ég límdi 3mm balsa undir hana öðrum megin til að fá skáskurð á balsaborðin. Ég stillti hana á 10 mm og skar síðan fullt af balsa til að planka Cessnuna.
20231211_110822.jpg
20231211_110822.jpg (126.68 KiB) Skoðað 1268 sinnum
Hér er svo fremsti hluti skrokksins plankaður í drasl. Ég er farinn að hlakka til að pússa þetta :D . Ég get það ekki alveg strax því að restin af balsaskinninu þarf að koma fyrst.
20231211_110823.jpg
20231211_110823.jpg (145.88 KiB) Skoðað 1268 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 13

Ég ákvað að það væri sniðugt að koma stýringunni fyrir í skrokknum aður en ég loka honum meira en orðið er. Ég ákvað líka að gera það samkvæmt teikningunni og ekki reyna að fela dótið, því þá er bara erfitt að komast að því seinna. Hér eru burðarbitar fyrir servóbakka komnir á sinn stað.
20231212_111712.jpg
20231212_111712.jpg (133.85 KiB) Skoðað 1248 sinnum
Servóbakkinn er bara límdur á bitana. Stýrisarmur fyrir tog-tog vírana í hliðarstýrið er settur á póst fyrir miðjum skrokk. Servóið er beint fyrir frama hann og stuttur teinn á milli.
20231212_113847.jpg
20231212_113847.jpg (133.09 KiB) Skoðað 1248 sinnum
Og hér eru svo rör fyrir tog-tog vírana. Ég notaði stífan tein til að fá rörin nokkuð bein aftur eftir skrokknum.
20231212_121726.jpg
20231212_121726.jpg (143 KiB) Skoðað 1248 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 14

Varð ekki mikið úr verki í dag: rétt náði að klæða bakborðs megin á framskrokknum með 3 mm balsa.
20231213_112258.jpg
20231213_112258.jpg (140.48 KiB) Skoðað 1227 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 15

Ég þarf að setja skinn sem hangir aftur af stélkambinum og stélfletinum og lokar lamarifunni að mestu. Það er gert með ræmu af ProSkin, en fyrst þarf að búa til tól sem tekur úr balsanum fyrir því. Þetta er bara einfaldur kross úr krossviði og 10 mm breið ræma af sandpappír.
20231214_122959.jpg
20231214_122959.jpg (142.95 KiB) Skoðað 1211 sinnum
Þetta er svo notað til að þynna balsaskinnið þar sem ProSkin ræman á að koma.
20231214_123048.jpg
20231214_123048.jpg (137.7 KiB) Skoðað 1211 sinnum
ProSkin ræman er 15 mm breið, svo að 5 mm hanga afturaf þegar þetta er límt á.
20231214_123220.jpg
20231214_123220.jpg (136.81 KiB) Skoðað 1211 sinnum
Og svona lítur þetta út þegar stýrið er sett á milli.
20231214_125343.jpg
20231214_125343.jpg (135.28 KiB) Skoðað 1211 sinnum
Ég gerði stýrisstöng úr kolfíber örvaskafti og M3 snittteini. Þetta þarf að harðna til morguns. Þá get ég sett þetta inn í skrokkinn.
20231214_133004.jpg
20231214_133004.jpg (140.63 KiB) Skoðað 1211 sinnum
Og ég klæddi 3 mm utan á stjórnborðshliðina.
20231214_133505.jpg
20231214_133505.jpg (146.13 KiB) Skoðað 1211 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 16

MJÖG stuttur dagur í dag: rafmagnið sló út og ég kann ekki að fá það inn aftur til að lýsa mér. Útsláttarrofinn sem mér var bent á vildi ekki smella inn, svo það eina sem ég gerði í dag var að setja stýrisstöngina fyrir hæðarstýrin aftur eftir skrokknum og skorða hana smávegis af.
20231215_100206.jpg
20231215_100206.jpg (144.02 KiB) Skoðað 1196 sinnum
Eftir þetta var allt í myrkri :cry:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

Dagur 17

Viku seinna. Ég fékk heiftarlegt kvef (ekki C19, ég gáði) og er búinn að liggja eins og drusla alla vikuna. Í dag fannst mér ég hafa þrek og heilsu til að líma smá balsa. Það var, sem betur fer, búið að laga rafmagnið á verkstæðinu (takk Elvar!)

Ég byrjaði að sníða til og líma balsaklæðningu á bakið á vélinni.
20231222_094858.jpg
20231222_094858.jpg (138.96 KiB) Skoðað 751 sinni
Svo kláraði ég klæðninguna á nefið.
20231222_104145.jpg
20231222_104145.jpg (135.86 KiB) Skoðað 751 sinni
Og það síðasta sem ég hafði orku í var að sníða til og líma balsa á aðra hliðina.
20231222_111548.jpg
20231222_111548.jpg (128.24 KiB) Skoðað 751 sinni
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 18

Heila klæðningin fór á stjórnborðið eins og ekkert væri.
20231223_094237.jpg
20231223_094237.jpg (132.31 KiB) Skoðað 103 sinnum
Nú er bara eftir að planka skrokkinn þar sem hann er bugðóttur. Ég byrjaði ofan á flugklefanum.
20231223_102602.jpg
20231223_102602.jpg (142.66 KiB) Skoðað 103 sinnum
Svo kom efra hornið bakborðsmegin. Það versta við að planka svona er, að eftir smá tíma þekur lím alla putta og tekur allan daginn að fara af aftur.
20231223_120410.jpg
20231223_120410.jpg (141.8 KiB) Skoðað 103 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara