Aðalfundur Þyts 2024 - Fundargerð

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
lulli
Póstar: 1244
Skráður: 1. Des. 2006 21:14:09

Aðalfundur Þyts 2024 - Fundargerð

Póstur eftir lulli »

Aðalfundur Þyts 14.mars 2024
1. Formaður setur fund kl. 20:15 - Mættir til fundar eru 7 fullgildir félagsmenn.
2. Fundarstjóri kosinn – Guðjón Halldórsson
3. Fundarritari kjörinn – Lúðvík Sigurðsson
4. Skýrsla stjórnar. Vinpoki var endurnýjaður, stöng máluð & skipt um legu. Svæðið fór tvisvar í útleigu á liðnu ári. Annarssvegar til skátanna sem
borguðu með slætti og hinsvegar undir viðburð og fyrir það fengust 80.000kr.
5. Reikningar lagðir fram til samþykktar – samþykktir einróma.
6. Fjárhagsáætlun. Hugrenningar um að kynna lagabreytingu fyrir næsta aðalfund um það að fella út hálfgjaldið. Árgjald kosið óbreytt og verður því áfram 16.000,-
7. Skýrslur nefnda;
Þytur hóf sumarið með vorgrilli 6. Maí og var fínasta mæting. Miðvikudagskvöldin voru á sínum stað út sumarið, en skipt var svo í 14:00 mætingu eftir að sól tók að lækka, og þar með eru allir miðvikudagar ársins orðnir Þytsdagar.
Svifflug – Iceland open F3F hefur vaxið frá fyrsta mótinu 2022 þegar 5 erlendir keppendur mættu til leiks en að þessu sinni voru 18 keppendur, og þar af 16 sem komu erlendis frá og þeir sem ferðuðust allra lengst komu frá Japan og taívan, aðrir frá Danmörku, Bretlandi, Þýskalandi, og Sviss og má ekki gleyma heimamönnunum 3 ásamt aðstoðarmönnunum sem hjálpuðu okkur en án þeirra hefði þetta ekki verið hægt!
Mótið hófst 29. Apríl og var flogið í Helgafelli fyrstu tvo dagana en ekki reyndist flugfært þriðja daginn. Flognar voru tíu umferðir, sjö á fyrsta degi og þrjár á öðrum degi. Besti tími mótsins var 38,41s sem Andy Burgoyne frá Bretlandi flaug í þriðju umferð.
Bretarnir röðuðu sér í 5 efstu sætin en af heimamönnunum lenti Sverrir í 8. Sæti, Erlingur í 15. Sæti og Guðjón í 18. Sæti.
Sú ákvörðun var tekin eftir Iceland Open F3F 2022 að halda það framvegis annað hvert ár á oddatöluárum til að vera ekki á sömu árum og heimsmeistaramótið. Næsta Iceland Open 3F3 verður því haldið vorið 2025
Reynt var að halda Kríumótið tvisvar, í seinna skiptið voru ekki nema fimm sem mættu á svæðið, þar af 3 flugmenn, svo ákveðið var að gera bara góðan æfingardag úr deginum.
Segir ekki meira af mótshaldi á árinu þar sem veðurguðirnir voru ekki að spila með okkur, eða kannski spiluðu þeim með okkur, þá daga og varadaga sem mótin voru sett á.
Árlegt Piper Cup mót var haldið og tókst vel. Stefnt verður á að Kríumótið verði haldið á Sandskeiði næsta sumar.
8. Kosning formanns: Einar Páll Einarsson fékk einróma endurkjör.
9. Kosning ritara: Lúðvík Sigurðsson fékk einróma endurkjör.
10. Kosning endurskoðenda reikninga: Jón Pétursson & Guðjón Halldósson fengu einróma endurkjör.
11. Kosning í meðstjórn: Þar var kosinn Sverrir Gunnlaugsson (nýr) & Hannes Kristinsson (endurkjörinn)
12. Lagabreytingar voru engar.

Kaffihlé - kaka með rjóma

13. Önnur mál: Umræður um gáminn á Hamranesi sem er orðinn lekur. Niðurstaða er sú að það vantar nýjan gám.
Umræða um að öryggisgirðingu vanti – samþykkt var að ganga í það að finna hagstæða lausn.
Hugleiðing um hvað nýtist best í gróðureyðingu brauta. Niðurstaða var að líklega væri best að nota salt til að drepa gróðurinn í brautunum.

Fundi slitið kl. 21:30
Viðhengi
Þytur.jpg
Þytur.jpg (332.51 KiB) Skoðað 256 sinnum
Þytur logo.jpg
Þytur logo.jpg (21.51 KiB) Skoðað 256 sinnum
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
Svara