Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3659
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 73

Nýji flugmaðurinn kom og fékk að prófa að sitja í flugklefanum. Hann virðist passa bara ágætlega.
20240508_102122.jpg
20240508_102122.jpg (144.93 KiB) Skoðað 149 sinnum
Svo þurfti hann endilega að setja út á hvernig ég tálgaði vængrótina.
20240508_102246.jpg
20240508_102246.jpg (125.01 KiB) Skoðað 149 sinnum
Ofan á flugklefanum er fering sem bognar nærri í hálfhring. Ég gerði þetta með því að vefja tvö lög af 0,6 mm krossviði utan um stál stöng og líma þau þannig saman. Þegar límið var orðið hart gat ég skorið feringuna til og límt hana ofan á vængrótina og skrokkinn.
20240509_093019.jpg
20240509_093019.jpg (141.02 KiB) Skoðað 149 sinnum
Ég fékk loksins nýtt epoxý frá FighterAces í Englandi og gat klárað að setja glerfíber á. Það voru hallastýrin sem voru eftir.
20240509_101017.jpg
20240509_101017.jpg (137.77 KiB) Skoðað 149 sinnum
Og innan í plássið sem hallastýrin koma í. Það fer að líða að því að ég geti grunnað og pússað vængina.
20240509_111732.jpg
20240509_111732.jpg (133.16 KiB) Skoðað 149 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3659
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 74

Glerfíber kominn á feringuna frá væng á skrokk.
20240510_113304.jpg
20240510_113304.jpg (142.96 KiB) Skoðað 128 sinnum
Glerfíber kominn á neðra borð hallastýranna. Næst er að pússa smá og setja báruplastið á.
20240510_113316.jpg
20240510_113316.jpg (134.11 KiB) Skoðað 128 sinnum
Búinn að grunna vængina. Nú fær þetta að harðna almennilega áður en ég byrja að pússa.
20240510_113321.jpg
20240510_113321.jpg (221.57 KiB) Skoðað 128 sinnum
Og fyrst ég var með grunnbrúsana í höndunum, þá ákvað ég að grunna hæðarstýrin. Þau eru þá tilbúin undir málningu.
20240510_113731.jpg
20240510_113731.jpg (234.6 KiB) Skoðað 128 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3659
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 75

Þá var komið að því að líma stélflötinn á skrokkinn. Hér sjást þau þrjú verkfæri sem ég notaði við undirbúninginn: hallamál, band og laser. Ég stillti skrokkinn af með hallamálinu, mældi frá miðjupunkti aftur á stélið með bandinu til að fá það þvert miðað við lang-ás skrokksins og notaði svo laserinn til að fá stélið lárétt.
20240511_094208.jpg
20240511_094208.jpg (134.37 KiB) Skoðað 116 sinnum
Til að líma stélið notaði ég epoxý lím blandað með örkúlum (microballoons) svo það leki ekki í burtu. Blönduna setti ég svo í sprautu og smá skreppihólk á stútinn svo ég gæti troðið líminu inn á stélið og fyllt í rifurnar sitt hvoru megin.
20240511_101322.jpg
20240511_101322.jpg (136.55 KiB) Skoðað 116 sinnum
Svo strauk ég allt auka lím í burtu með klút vættum í rauðspritti. Þetta verður sérlega snyrtilegt og lítið sem þarf að pússa.
20240511_101513.jpg
20240511_101513.jpg (127.26 KiB) Skoðað 116 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3659
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 76

Þegar stélflöturinn var orðinn vel fastur var hægt að setja kambinn á. Laser hallamálið var ómetanlegt við þetta verk. Það sýnir bæði lárétt og lóðrétt og ég gat stillt stötðu kambsins eftir línunni sem laserinn sýndi.
20240513_093514.jpg
20240513_093514.jpg (142.69 KiB) Skoðað 81 sinni
Framan við stélkambinn er hryggur sem límist á mitt bakið. Þetta setur gríðarlega svip á FRÚna og er ómissandi á svona Cessnum.
20240513_111713.jpg
20240513_111713.jpg (129.98 KiB) Skoðað 81 sinni
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3659
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 77

Það þarf að jafna út og búa til feringu frá hryggnum yfir á kambinn og, vegna þess að þetta er nokkuð djúpt, þá er best að nota Isopon P-38, sérstaklega vegna þess að það harðnar mjög fljótt.
20240514_093833.jpg
20240514_093833.jpg (129.63 KiB) Skoðað 62 sinnum
Það er ekki nauðsynlegt að pússa P-38 alveg slétt. Ég smyr fylliefni á það til að fá slétt fyrirborð. Gallinn við það er að ég þarf að bíða til morguns með að pússa það niður.
20240514_101550.jpg
20240514_101550.jpg (139.26 KiB) Skoðað 62 sinnum
Húsið yfir vírana í hliðarstýrið er búið til úr 1,5 mm krossviði.
20240514_111957.jpg
20240514_111957.jpg (141.35 KiB) Skoðað 62 sinnum
Það er límt á skrokkinn og ég setti rautt fylliefni á það til að fá það slétt. Ég er ekki viss um að ég nenni að húða það í glerfíber, enda er þetta afar smátt.
20240514_112630.jpg
20240514_112630.jpg (141.62 KiB) Skoðað 62 sinnum
Á meðan ég límdi húsið á stalst Stefán (listamaður sem hefur aðstöðu hér á verkstæðinu) til að taka af mér mynd. Mér sýnist að ég þurfi að fá mér nýjan slopp hvað úr hverju.
441122432_1172096217131847_870772822958605885_n.jpg
441122432_1172096217131847_870772822958605885_n.jpg (143.39 KiB) Skoðað 62 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3659
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 78

Fleiri plötuskil. Hér koma hryggurinn og stélkamburinn saman. Það eru frekar flókin samskeyti hérna, sérstaklega vegna þess að það er mótað form í kverkinni. Þetta þarf að sýna með fylliefni. Fyrir framan stélflötinn er skoðunarlúga sem ég bjó til úr ál límbandi
20240515_103407.jpg
20240515_103407.jpg (130.43 KiB) Skoðað 42 sinnum
Á stélfletinum er heilmikil brún.
20240516_093910.jpg
20240516_093910.jpg (237.8 KiB) Skoðað 42 sinnum
Og hún sést hér eftir að límbandið er farið.
20240517_090204.jpg
20240517_090204.jpg (136.17 KiB) Skoðað 42 sinnum
Ég notaði meira ál límband til að búa til handföngin á hurðunum.
20240517_095038.jpg
20240517_095038.jpg (137.33 KiB) Skoðað 42 sinnum
Fremst á hryggnum er nef formað úr áli og hnoðað niður á bakið. Ég bjó það til úr límbandi og fylliefni
20240517_113305.jpg
20240517_113305.jpg (160.04 KiB) Skoðað 42 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3659
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 79

Bárurnar fyrir hallastýrin. Búið að setja þær á stýrið neðst og allt tilbúið að setja á hitt stýrið. Bárurnar liggja ekki þvert á hallastýrin, heldur eftir vindstefnunni.
20240518_103233.jpg
20240518_103233.jpg (142.58 KiB) Skoðað 25 sinnum
Ég er önnum kafinn að pússa niður vængina, setja fylliefni og pússa það. Þetta á eftir að taka nokkra daga.
20240518_114808.jpg
20240518_114808.jpg (142.03 KiB) Skoðað 25 sinnum
Flugmaðurinn frá Premier Pilots setti sig í stellingar eins og Ómar.
20240518_120904.jpg
20240518_120904.jpg (127.83 KiB) Skoðað 25 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara