Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
20°upp og 14°niður á stóru frænku!
Icelandic Volcano Yeti
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
TF-FRU -- Dagur 93
Það tók mig dágóða stund að klippa til pappa í afturhluta flugmannsklefans og loka honum þannig. Ég málaði þetta blátt og hvítt og skrúfaði niður með servóskrúfu svo ég geti tekið það burtu aftur ef ég þarf. Er bara alls ekki slæmt. Nú er bara mælaborðið eftir og þá get ég sett gluggana í.

Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
TF-FRU -- Dagur 94
Þá er komið að mælaborðinu. Ég er búinn að horfa á Dave Platt oft og mörgum sinnum setja saman ógurlega flott mælaborð og ég reyni hér að fara eins og ég get eftir leiðbeiningum meistarans. Þeir sem vilja læra af meistaranum geta farið inn á Sarik Hobbies og pantað videóin hans þaðan í réttu formi fyrir Evrópumarkað.
Ég byrjaði á að prenta út nokkur eintök af mælaborðinu og það fyrsta var límt á 3 mm balsa sem bakplata. Ég mátaði hana í módelið og vissi þá að ég gat haldið sótrauður áfram.
Hér er ég að búa til milliplötuna í mælaborðið. Þetta er gert úr 2,5 mm balsa og gefur dýpt og þrívídd í mælana. Verkfærin sem ég nota eru borvél, rúnnþjöl og þrepabor. ásamt hnífum og sandpappír. Þrepaborinn gefur mér 12 og 16 mm sem ég þarf til að búa til opin fyrir mælana.
Hér er svo milliplatan komin og ég er búinn að mála svart innan í opin. Þetta passar svo ofan á myndir af mælum sem ég setti saman í Inkscape. -- já, ég veit, þetta eru ekki "réttu" mælarnir, en hverjum er ekki sama. --
Og hér eru aðal hlutar mælaborðsins:
1: bakplatan
2: mynd af mælum
3: milliplatan
4: glært plast
5: 1,5 mm styrene plast
Nú get ég límt þetta saman og svo sett alls konar aukahluti, eins og staðsetningartæki, radíó, rofa, stýri og handföng eins og ég nenni.

TF-FRU -- Dagur 95
Ég dundaði mér í morgun við að búa til siglingatæki og talstöðvar.
Svo límdi ég saman lögin í mælaborðinu.

TF-FRU -- Dagur 96
Ég bjó til stýrin úr smá krossviði og sullaði P-38 á hann til að fá formið á þau.
Svo sat ég í góða stund og tálgaði fyllinn, pússaði og svarf þangað til ég hafði náð nokkuð réttu útliti. P-38 er dásamlegt efni.
Ég nota átta segulstál til að halda mælaborðinu á sínum stað, þannig að hægt sé að ná því í burtu ef maður þarf eitthvað að fást við bensíntankinn sem situr fyrir framan það. Þetta þýðir líka að ég get bætt við smáatriðum á mælaborðið eins og þarf, þegar ég vil.
Fjögur segulstál eru límd aftan á skrokkrammann og fjögur á framhliðina á mælaborðinu.
Mælaborðið skellur á sinn stað með heilmiklum hvelli og hreyfist ekki fyrr en maður togar fast í það.

TF-FRU -- Dagur 97
Ég málaði mælaborðið, setti stýrin á sína staði og skellti því í módelið. Ég ætla ekki að gera mikið meira við mælaborðið sem stendur. Ég þarf að bæta við inngjöf og fleiri áberandi handföngum, en þau koma seinna.
Ég setti flugmanninn í sætið sitt og límdi öryggisbeltin föst. Þgar það er öruggt að hann detti ekki úr, þá lími ég sætið í flugklefann.

TF-FRU -- Dagur 98
Plastið sem fer í gluggana er glært, en allir gluggarnir í FRÚnni eru litaðir, nema framrúðan. Ég fékk hvergi litað plast, svo ég ákvað að lita það sjálfur. Ég fékk rúllu af bláu plasti sem málarar og múrarar nota til að maska það sem ekki á að mála eða múra og setti það innan á glerið sem fer í gluggana.
Ég setti svo Formula 560 plastlím innan í fölsin sem glerið fer í. Til að auðvelda það beygði ég pensilinn í 90° svo ég gæti malað líminu á réttan stað.
Svo smokraði ég glerinu á sinn stað og notaði títuprjóna til að halda því á meðan límið harðnar.
Hér eru allir gluggarnir komnir í (nema framrúðan) og flugmaðurinn bara nokkuð ánægður.

TF-FRU -- Dagur 99
Plastið sem ég ætlaði að nota í framrúðuna var of stíft og stirt og þvert, svo mér tókst ómögulega að setja það á sinn stað. Ég pantaði þynnra plast og á meðan það er á leiðinni, þá maskaði ég allt sem ekki á að vera málað.
Svo bjó ég til aðstöðu fyrir utan verkstæðið og byrjaði að sprauta í góða veðrinu.
Og fyrst ég var að sprauta, þá ákvað ég að setja smá málningu á vængina af Stampe TF-OLD, sem ég hef ekki snert lengi.
Hér er svo skrokkurinn kominn með fyrstu umferð af hvítu.

TF-FRU -- Dagur 100
Ekki gott veður á Dalvík í dag og því ekki möguleiki að sprauta úti. Þá er ekkert að gera annað en dútla sér við smáverk. Ég teiknaði (giskaði á) loftnetin sem eru á þakinu á skrokknum og bjó þau síðan til úr 3 mm pinna, 0,8 mm píanóvír, ProSkin og P-38.
Svo sprautaði ég það sem ég gat inni, án þess að þyrla upp miklu ryki. Ég sprautaði aðra felguna appelsínugula vegna þess að að eru til myndir af FRÚnni þannig

TF-FRU -- Dagur 101
Morguninn fór allur í að merkja og maska skráningarstafina á neðra borð vinstri vængsins og svo sprauta tvær umferðir af dökk-bláa litnum.