Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Gaui
Póstar: 3761
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 8

Ég setti seinni hliðina saman ofan á hinni. Ég bara bretti plastfilmuna yfir fyrri hliðina og límdi þá seinni saman þar ofaná. Þannig ættu þær báðar að verða eins.
20241212_120657.jpg
20241212_120657.jpg (141.4 KiB) Skoðað 580 sinnum
Á meðan límið harðnaði límdi ég krossviðar rif innan í hurðaskinnin.
20241212_114013.jpg
20241212_114013.jpg (140.06 KiB) Skoðað 580 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3761
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 9

Margir vinklar, klemmur og límbönd notuð til að setja hliðarnar saman ofan á teikningunni. Gekk bara vel.
20241213_111619.jpg
20241213_111619.jpg (145.36 KiB) Skoðað 538 sinnum
Ég færi servóin til þannig að þau verð aftar í skrokknum en sýnt er á teikningunni. Ég vil helst ekki hafa þau undir framsætinu. Til að ég hafi aðgang að servóunum, þá setti ég furulista í botninn á skrokknum þar sem kemur lok. Svo skar ég til 6mm balsa og kom honum fyrir á milli kolfíber stanganna. Á þeim eru göt fyrir bita sem koma til með að halda servóbakkanum.
20241213_120107.jpg
20241213_120107.jpg (138.16 KiB) Skoðað 538 sinnum
Skrokkrifið aftast í flugklefanum færist aftar og lækkar þar með. Hér er ég búinn að merkja það sem þarf að skera af rifinu svo það passi rétt ofan á skrokkinn.
20241213_104544.jpg
20241213_104544.jpg (135.16 KiB) Skoðað 538 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3761
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 10

Til að geta haldið áfram með skrokkinn varð ég að efna niður í tvö stykki sem SLEC gleymdi að laserskera. Sem betur fer átti ég 6mm birki krossvið sem ég notaði til að búa til þessa hluta.
20241214_103756.jpg
20241214_103756.jpg (129.92 KiB) Skoðað 509 sinnum
Nú gat ég byrjað að setja flugklefann saman. Efst er vængsætið og frá því eru tvær 6mm stangir sem límast við afturpartinn, annars vegar, og mótorbúkkann, hins vegar. Ég límdi þetta saman með epoxý lími og fergði það niður á meðan límið harðnar.
20241214_114809.jpg
20241214_114809.jpg (143.76 KiB) Skoðað 509 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Árni H
Póstar: 1593
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Árni H »

Á að frumfljúga á milli jóla og nýárs? :D
Passamynd
Gaui
Póstar: 3761
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

Það er alveg hugsanlegt, Árni. En ég þarf, líklega, að klára vænginn fyrst.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3761
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 11

Morguninn fór að mestu í að stilla upp og svo líma saman flugklefann. Þetta er ekki erfitt, en báðar hliðar þurfa að vera lóðréttar miðað við gólfið.
20241216_113706.jpg
20241216_113706.jpg (142.32 KiB) Skoðað 427 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3761
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 12

Mótorbúkkinn er nú límdur við flugklefann. Þetta virðist ekki neitt rosalega öflug samsetning, en það er ekki allt komið. Athugið að eldveggurinn er í réttu horni við klefagólfið, samkvæmt teikningunni.
20241217_095238.jpg
20241217_095238.jpg (143.66 KiB) Skoðað 397 sinnum
Skástífur innan við framrúðuna eru næstar. Þetta eru 5mm örvasköft úr koltrefjum, límd með epoxý lími.
20241217_105519.jpg
20241217_105519.jpg (141.35 KiB) Skoðað 397 sinnum
Og svo koma 6mm balsahliðar sem halda þétt við mótorfestinguna að framan og flugklefann að aftan. Mælaborðið er líka komið í, því á morgun kemur 3mm balsaklæðning á þetta allt saman.
20241217_112350.jpg
20241217_112350.jpg (144.04 KiB) Skoðað 397 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3761
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 13

Mjög ánægjulegur morgun að planka nefið á mótorbúkkanum. Ég ætlaði að bara beygja 3mm balsa yfir nefið, en hann var of þykkur, harður og stökkur til að láta beygja sig, svo ég skar hann niður í 10mm lengjur og plankaði á gamla mátann: með trélími og títuprjónum. Ég hlakka til að pússa þetta á morgun.
20241219_114715.jpg
20241219_114715.jpg (146.19 KiB) Skoðað 310 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3761
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 14

Ég byrjaði morguninn á því að pússa nefið á flugklefanum slétt. Svo stillti ég saman framhluta og afturhluta skrokksins, mældi allt eins nákvæmlega og ég gat og límdi svo saman með epoxý lími. Svo passaði ég mig á að koma ekki við þetta á meðan límið harðnar.
20241220_115038.jpg
20241220_115038.jpg (143.16 KiB) Skoðað 261 sinni
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3761
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 15

Í dag mældi ég og kíkti stélflötinn aftan á skrokkinn og þegar allt var rétt setti ég góða slummu af lími og festi hann (þ.e. miðjuna) á skrokkinn. Stöngin sem situr framan á skrokknum var notuð til að kíkja út lárétta stöðu og svo notaði ég réttskeiðina sem sést á myndinni til að mæla frá vængsætinu að ytri brún stélsins.
20241221_100729.jpg
20241221_100729.jpg (145.07 KiB) Skoðað 80 sinnum
Hér er límið nokkuð þurrt og ég gat tekið stél helmingana af til að pússa miðjuna niður að skrokkhliðunum.
20241221_103037.jpg
20241221_103037.jpg (143.89 KiB) Skoðað 80 sinnum
Og þegar stélið fer á aftur verður svona bil frá rótinni að skrokknum. Þarna fer dúk klæðningin í gegn, eins og venja er á svona flugvélum.
20241221_105409.jpg
20241221_105409.jpg (143.81 KiB) Skoðað 80 sinnum
Og þá er ekki úr vegi að gá hvernig módelið lítur út með alla stél hluta á. Bara flott, þó ég segi sjálfur frá.
20241221_111050.jpg
20241221_111050.jpg (145 KiB) Skoðað 80 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara