Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Gaui
Póstar: 3794
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 34

Ég dundaði við stélið í dag. Ég felldi 1,5mm krossvið ofan í afturbrún allra stélflata þar sem stögin eiga að koma. Þessi stög verða virk og halda stélinu á.
20250130_095404.jpg
20250130_095404.jpg (143.4 KiB) Skoðað 12617 sinnum
Ég fékk rúllu af hvítu Oratex hjá Tomma og ákvað að klæða vinstra hæðarstýrið. En ég byrjaði á því að saga trimmið af, setti lamir á það og bjó til horn úr prentplötuefni. Þetta kemur ekki til með að virka, en allt í lagi að það líti út fyrir að virka.
20250130_120625.jpg
20250130_120625.jpg (149.44 KiB) Skoðað 12617 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3794
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 35

Ég bætti afturljósinu við hliðarstýrið. Ég boraði gat á rétta (?) staðinn og límdi bút af kolfíber röri í það. Svo sullaði ég P38 í kring, tálgaði það til og pússaði. Ég set svo seinna einhverja peru í þetta til að herma ljósið.
20250131_110825.jpg
20250131_110825.jpg (144.46 KiB) Skoðað 12583 sinnum
Svo klæddi ég hliðarstýrið með Oratex.
20250131_120224.jpg
20250131_120224.jpg (146.03 KiB) Skoðað 12583 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3794
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 36

Ekki mikið gert i dag. Ég klæddii stélfletina og hæðarstýrin með Oratexi.
20250203_105531.jpg
20250203_105531.jpg (140.27 KiB) Skoðað 12357 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3794
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 37

Ég fékk sendingu frá Lindinger í Austurríki: M3 kúlutengi úr áli sem ég ætla að nota á vængstífurnar. Nú vantar mig bara heppilegan við í stífurnar.
20250206_091839.jpg
20250206_091839.jpg (138.73 KiB) Skoðað 11472 sinnum
Ég fékk líka nýjan NGH 35cc með hlðarpústi sem ég ætla að festa framan á nefið á módelinu.
20250206_092612.jpg
20250206_092612.jpg (145.03 KiB) Skoðað 11472 sinnum
Hér eru mótorbúkkarnir komnir á mótorkassann og mótorinn boltaður á. Ég boraði í eldvegginn til að boltarnir aftan á mótornum gætu gengið inn í þau og þannig situr mótorinn eins aftarlega og mögulegt er. Athugið að ég þarf að saga úr mótorkassanum til að hljóðkúturinn komist á.
20250206_122043.jpg
20250206_122043.jpg (139.55 KiB) Skoðað 11472 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3794
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 38

Þetta horn á mótorkassanum þurfti að víkja því að hljóðkúturinn stendur aðeins afturúr mótornum.
20250207_094057.jpg
20250207_094057.jpg (144.57 KiB) Skoðað 11227 sinnum
Ég boraði fyrir styrkingum í mótorbúkkana og límdi nokkra díla í, Sá fremsti gengur inn í eldvegginn.
20250207_095317.jpg
20250207_095317.jpg (142.58 KiB) Skoðað 11227 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3794
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 39

Hliðar módelsins undir klæðningunni eru formaðar með 1,5mm stálvír sem er límdur upp á krossviðar stóla til að halda honum í réttri hæð.
20250208_110903.jpg
20250208_110903.jpg (134.57 KiB) Skoðað 11210 sinnum
Ég ætla að setja 2mm balsa upp á rönd undir vírinn þar sem hann spannar á milli uppistaða til að hann sé nú örugglega beinn og gefi ekki eftir þegar klæðningin kemur á.
20250208_110934.jpg
20250208_110934.jpg (135.56 KiB) Skoðað 11210 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3794
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 40

Ég kláraði að setja langböndin á vinstri hliðina. Vegna þess að þau eru bara 1,5mm stálvír, þá skar ég til 10mm breiða planka úr 2mm balsa og límdi undir þau svo þau myndu ekki gefa of mikið eftir þegar dúkurinn kemur á. Ég setti líka bönd í kringum gluggann. Gluggaplastið og dúkurinn koma til með að sitja á þessu.
20250210_113721.jpg
20250210_113721.jpg (136.74 KiB) Skoðað 11194 sinnum
Ég setti fyllingu undir stélið það sem stýrivírarnir eiga að koma og merkti þar sem þeir koma út úr skrokknum.
20250210_113731.jpg
20250210_113731.jpg (139.37 KiB) Skoðað 11194 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3794
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 41

Stuttur dagur í dag. Upp hafa komið áhyggjur um að stálvírarnir aftur eftir skrokknum séu of þungir og kalli á aukna þyngd í nefinu. Ég vigtaði einn 1000mm x 1,5mm stálvír og vogin sýndi 14 grömm.

Miðað við að mótorinn er um 1.400 grömm fyrir utan rafhlöður, þá ætla ég ekki að hafa mjög miklar áhyggjur af að módelið verði stélþungt.

Strax.
20250211_091152.jpg
20250211_091152.jpg (135.12 KiB) Skoðað 10651 sinni
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3794
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 42

Ég setti vírana á hægri hliðina í dag.
20250212_113316.jpg
20250212_113316.jpg (142.27 KiB) Skoðað 9881 sinni
Og rétt áður en ég fór heim setti ég festingu fyrir stélhjólastellið á með epoxý lími.
20250212_120918.jpg
20250212_120918.jpg (145.28 KiB) Skoðað 9881 sinni
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3794
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 43

Ég ætlaði að vera mjög duglegur í dag, en rifbrotið kom í veg fyrir það. Það eina sem mér tókst að gera var að setja plaströr í skrokkinn fyrir stýringar í stélið: tog-tog víra fyrir hliðarstýrið, og sitt hvorn teininn fyrir hæðarstýrin.
20250217_115212.jpg
20250217_115212.jpg (145.21 KiB) Skoðað 922 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara